Verkefnið
er hugsað sem samþætting stærðfræði
og upplýsingatækni. Í því felst upplýsingaleit
á bókasafni og/eða veraldarvefnum. Auk þess fá
nemendur kennslu í að taka myndir og vinna með þær.
Markmið að
nemendur:
verða
hæfari í að leita sér upplýsinga í
bókum og á netinu
skilgreinda
með eigin orðum hvað ýmis stærðfræðihugtök
þýða og læra að nota tungumál stærðfræðinnar
geri
sér grein fyrir hve víða stærðfræði
er að finna í umhverfinu
þjálfast
í hópvinnu og sameiginlegri ábyrgð
þjálfast
í að greina skipulega frá niðurstöðum
sínum, bæði munnlega og skriflega
greina myndrænt stærðfræðileg viðfangsefni
í umhverfi sínu í gegnum myndavél
Verkefni
Þið
eigið að búa til veggspjöld sem skilgreina stærðfræðihugtök.
Þið eigið að kynna veggspjaldið fyrir öðrum
nemendum í bekknum. Jafnframt eigið þið að semja
texta sem dreift verður til allra bekkjarfélaga.
Þið
fáið stafræna myndavél og eigið að taka
myndir í nágrenninu til að skýra hugtakið
myndrænt. Jafnframt lærið þið hvernig nota má
tölvutækni í vinnslu með myndir. Þið skuluð
gera tímaáætlun fyrir hvern verkþátt
og skipta með ykkur verkum. Skráið hjá ykkur í
dagbók allt vinnuferlið t.d. hvað er ákveðið
hverju sinni, hvað hver á að gera, hvað gekk vel, hvað
gekk illa, hvað hver hefur gert og munið að dagsetja hverja
skráningu
Gerið heimildalista yfir allar heimildir sem þið notið
Bjargir
Til
að leysa verkefnið þurfið þið á ýmis
konar upplýsingum að halda. Þið þurfið
einnig stafræna myndavél. Ef þið hafið ekki
tekið myndir með slíkri vél áður eru
hér upplýsingar. Stafręn
myndvinnsla
Þið
eigið að leita að upplýsingum um hugtökin á
netinu og í alfræðiorðabókum.
Hér
eru nokkrar vefslóðir sem hjálpa ykkur að skilgreina
hugtök stærðfræðinnar.
Þið
eigið að vinna að verkefninu í 2 – 4 manna hópum
og skipa hópstjóra og ritara.
Það
sem á að koma fram á veggspjaldi:
skilgreining
á stærðfræðihugtakinu
mynd/myndir
sem skilgreina hugtakið
frásögn um hvenær/hvar viðkomandi hugtak er
notað í daglegu lífi.
vangaveltur um hvers vegna þið haldið að allir grunnskólanemar
eigi að læra þennan þátt stærðfræðinnar.
Þegar
veggspjaldið er tilbúið verður munnleg kynning þar
sem hver hópur segir frá viðfangsefninu sem hann vann
með. Skráið upplýsingar um viðfangsefnið
á blað, sem aðrir nemendur fá með sér
heim.
Hóparnir
skipta með sér verkum, til dæmis:
hópur
1 fjallar um prósentur
hópur 2 fjallar um almenn brot
hópur 3 fjallar um tugabrot
hópur 4 fjallar um algebru
hópur 5 fjallar um flatarmál
hópur 6 fjallar um rúmmál
Mat
Þetta
er hópverkefni. Kennari gefur einkunn fyrir frammistöðu
og frumkvæði hópsins. Virkni einstaklinga innan hópsins
og samvinna verður metin sérstaklega.
Öll
vinna er metin til einkunna. Símat fer fram á meðan
á vinnuferlinu stendur. Metið er hvernig einstaklingum gengur
að vinna saman og komast að samkomulagi. Dagbókin, afraksturinn
og kynningin sem fram fer í lokin er metin hjá hópnum
í heild. Vinnuframlag einstaklings er metin eftir dagbókinni
og einnig með athugun á meðan á vinnunni stendur.
Hver einstaklingur skilar sjálfsmati til kennara þar sem
hann metur sitt framlag og hvernig honum finnst hafa til tekist.
Öllum gögnum ber að skila og verða þau einnig
metin í heildareinkunn.
Niðurstaða
Kæru
nemendur.
Nú ættuð þið að hafa komist að því
að stærðfræði er að finna alls staðar
í kringum okkur. Við erum ávallt að nota hana án
þess að gera okkur grein fyrir því.
Þið hafið einnig komist að því að vinna
við veggspjöld og markvissa upplýsingaleit krefst mikillar
og náinnar samvinnu ykkar.
Vonandi
hafið þið haft gagn og gaman af verkefninu.