• efrallý

    fyrir nemendur í 5. bekk grunnskóla

     

    Þetta vefrallý er ætlað sem kynning á Íslandsvefnum .

    Það þjálfar almenna netnotkun og upplýsingaleit.

    Nemendur eiga að vinna 2 - 3 saman í hóp.

    Þig eigið að skrifa svörin við spurningunum inn í word-skjal og senda á gan@ismennt.is
    strax að vinnu lokinni.

    Markmiðið er að ljúka verkefninu á sem skemmstum tíma.

    Við úrvinnslu verkefnisins skal notast við Íslandsvefinn

     

    Nú hefst leikurinn.

    Munið að skrá tímann sem tekur að leysa verkefnin.

    Góða skemmtun.

    1. Á hvaða svæði á suð – vesturhorni landsins búa meira en 60% þjóðarinnar?

    2. Það myndast ljós þegar rafhlaðnar eindir frá sólu rekast á agnir loftshjúpsins nálægt
      segulskautum jarðar. Hvað heitir ljósið?

    3. Hver er ég?
      Ég er oft réttilega nefnd silfur hafsins og gæti það verið réttnefni á tvo vegu,
      annarsvegar er verðmæti mitt og minnar tegundar meira en flestra annarra
      fiskitegunda og á hinn bóginn er silfraður litur minn svo fagur að líkja má við
      eðalmálm.

    4. Hvar á hálendinu má finna merki um jarðhita? Nefndu fjögur dæmi.

    5. Hvaða jökull er norðarlega á austanverðum Vestfjarðakjálkanum?

    6. Hver er ég?
      Ég er stærsta dýr jarðarinnar og mig er hægt að finna í höfunum kringum Ísland.

    7. Hvað heitir höfuðstaður Norðurlands? Hvað búa þar margir?

    8. Hvar er lengsta á landsins og hvað heitir hún?

    9. Hver er ég?
      Ég er staðfugl. Kjörlendi mitt yfir varptímann eru gróðursæl mólendi en annars er ég
      í móum, mýrum og kjarrlendi. Á veturna er ég mest til fjalla og á heiðum en einnig í
      hraunum og kjarrlendi, þá er ég alhvít.

    10. Frægasta eldfjall Íslands gnæfir yfir Suðurlandsundirlendinu í austri.
      Hvað heitir það og hvað er það margra metra hátt?

    11. Veljið eitt landssvæði og lýsið í nokkrum setningum.

    12. Veljið eitt dýr og semjið um það þrjár spurningar.