|
Til
þess að taka þátt í keppninni verður
þú að búa til flugdreka sem getur komist
á loft og haldist þar sem lengst. Til þess að
það sé hægt þarft þú einungis
að lesa eftirfarandi ráðleggingar, fylgja þeim
og vanda þig við vinnuna.
Þú byrjar á að kynna þér undirstöðuatriði
við gerð flugdreka.
Síðan
ákveður þú hvort betra sé að
vinna einn eða með öðrum, allt eftir stærð
og gerð flugdrekans sem þú ætlar að búa
til. Ef þú átt í vandræðum
með að finna félaga er gott að leita til stjórnenda
keppninnar. Þeir geta örugglega hjálpað þér.
Nú er að komið að því að kynna
sér heimildir. Þú skalt gæta þess
að lesa þær sem eru með hagnýt ráð
um hvernig sé best að bera sig að við að
búa til flugdreka og koma honum á loft.
Gott er að búa til snið að flugdrekanum til að
gera færri mistök þegar byrjað er að vinna
með dýrmætt efni.
Það þarf að finna sér efni í flugdrekann.
Nota reynsluna og þekkinguna sem búið er að
safna saman til að búa til flugdrekann.
|