Nám og kennsla á Netinu

Heimasíða

Ferill

Nám í KHÍ

UMST

Nám og
kennsla

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

upp

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

upp

Þetta er skilasíðan mín eftir þátttöku í námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu. Kennarinn lét okkur fá í hendur skiptingu þess í tölusettum liðum og mun ég reyna að skila verkefnum samkvæmt því þótt þau skarist stundum.

1. Hönnun á Kennsluvefjum/vefsíðugerð (2 ein)

1.1 Vefleiðangur minn fyrir skólastarf heitir Útvarpsrásin mín. Hann er ætlaður fyrir nemendur í 7. bekk og fellur að aðalnámskrá grunnskóla frá 1999 í íslensku og tölvu- og upplýsingatækni. Vefleiðangurinn getur einnig verið hluti að námsefni á vef.

1.2 Vefleiðangurinn "Fljúga skal flugdrekinn" fyrir frístundanám er hægt að nota hvort sem er í námi eða leik. Markhópur eru börn á aldrinum 10 - 14 ára.

1.3 Kennsluefnið mitt sem einnig fellur undir lið 5. Valið verkefni (1 e) nefni ég Útvarp Reykjavík. Þetta námsefni er hugsað sem ítarefni við Skruddu, námsbók í móðurmáli, eftir Gísla Ásgeirsson og Þórð Helgason. Skrudda var gefin út af Námsgagnastofnuninni árið 1998 og er kennd í 7. bekk grunnskólans.
Á verkefnasíðum nota ég bæði Rollover Image og a:hover til að lífga upp á síðurnar. Því miður virðist Netscape ekki vera sátt við notkun á þessari tækni og neitar að hlýða fyrirskipunum sem gefnar eru efst á þeim meðan Explorer er alveg sáttur við þær. Þar sem Explorer er einnig til taks í Austurbæjarskóla ákvað ég að breyta ekki síðunum, láta þær standa svona fram yfir mat og heyra skoðun kennara hvað skuli gera í þessu máli.

1.4 Í þessari lotu voru mörg verkfæri skoðuð og prófuð og er ég með þau helstu á sérstakri verkfærasíðu. Ýmsar vefsíður voru skoðaðar s.s. this.is sem mun örugglega nýtast eftir námið en ég þarfagreindi kennari.is með Guðfinnu og Oddnýju.
Ég tók þátt í og fylgdist með umræðum á Webboard, samanber ráðstefnur sem settar voru upp fyrir þær, t.d. Lýsisgögn og leit en niðurstaða mín var að leit.is væri besta leitavélin. Núna er google.com í 1. sæti hjá mér. Þá las ég fyrirlestra sem voru birtir á Webboard og fylgdist með umræðum.

1.5 Hér vísast til þeirra síðna sem ég hef ofið og einnig verkefnasíðunnar. Hér rifjaðist upp að allt er best í hófi, bæði m.t.t. smekklegheita og til að ofhlaða ekki vegna tímans sem tekur að hlaða síðunum niður.

2. Námsumhverfi á vefnum (1/2 ein)

2.1 Netið sem námsumhverfi unnum við Guðfinna saman.

2.2 Ég sendi stutt framlag inn á ráðstefnuna um UT 2001 á Webboard og fylgdist með framlögum annara og tók þátt í umræðum.

3. Netsamskipti (1/2 ein)

3.1 Fylgdist með umræðum, tók þátt í þeim á Webboard og prófaði ýmislegt sem var í umræðunni, sjá verfærasíðuna sem tæpir á því helsta sem ég man eftir.

4. Nýting í skólastarfi (1 ein)

Umræðuframlög mín voru á ráðstefnunni, Netnotkun í skólastarfi:
Að víkka sjóndeildarhringinn og Jafnrétti til náms.
Að sjálfsögðu tók ég þátt í og fylgdist meðumræðum.
Á eun.org vefnum tók ég þátt í og fylgdist með umræðunni um eWizard og Innovation Safe-discussion.

4.2 Ég valdi að gera kennsluáætlun og var hún um Reykjaferð 7. bekkja. Tveir bekkir 7. GE og 7. KK í Austubæjarskóla útbjuggu dagbókarsíðu um ferðina.

5. Valið verkefni (1 ein)

Ég kaus að auka við verkefnið mitt um Útvarp Reykjvavík, sjá lið 1.3

sins birt

upp Síðast uppfært 29.05.2001
©Guðfinna Emma Sveinsdóttir