Kynning


Nú er komið að því að sleppa bókinni og víkka sjóndeildarhringinn. Þú ert orðinn þátttakandi í keppni um flottustu heimasíðuna og plakatið. Til að þitt verkefni verði flottast og best skaltu fylgja leiðbeiningunum hér fyrir neðan og gera þitt besta.

Verkefni


Til að heimasíðan og plakatið verði sem vandaðast skaltu fylgja eftirfarandi leiðbeiningum og bæta síðan við eigin frumkvæði og þekkingu.

Þú byrjar að ræða við félaga þína í hópnum og ákveða hvernig þið ætlið að vinna verkefnið.

Nú er að komið að því að finna heimildir um Bríeti og kvenréttindabaráttuna á Íslandi.

Skiptið heimildum á milli ykkar og kynnið ykkur þær og veljið þær sem þið ætlið að nota.

Ákveðið hvernig þið ætlið að setja efnið fram.

Skiptið á milli ykkar verkum og byrjið að velja upplýsingar sem þið ætlið að nota.

Munið að passa upp á að safna saman lista yfir heimildir sem þið notið.

Raðið saman verkefninu og setjið upp á heimasíðu og plakat.

Heimasíðan á að vera unnin í FrontPage.

Munið að myndskreyta verkefnið ykkar.

Það er möguleiki að prenta út vefleiðangurinn til að hafa hann alltaf við hendina.

Kynna á allt verkefnið fyrir bekkjarfélögunum.

Efst á síðu

Bjargir


Hér á eftir kemur heimildalisti sem þið eigið að meta og velja úr. Það er hægt að finna fleiri heimildir á Netinu og er ykkur velkomið að bæta við listann ef þið finnið einhverjar sem þið getið notað. Ég minni einnig á bókasafnið sem geymir fjölda heimilda sem þið getið notað. Eftirfarandi heimildir skarast og er skiptingin ekki afgerandi.

Bríet Bjarnhéðinsdóttir

http://www.briet.is/brietarsagabjarn.htm

http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=250

http://www.hi.is/stjorn/sam/fbrefhi/1999/juni/helgrimur.html

http://www.domkirkjan.is/B008.html

http://saga.khi.is/valkostir/briet.htm

http://www2.stjr.is/fr/radh/radstef/vigdis.htm

Kosningaréttur kvenna

http://saga.khi.is/valkostir/drifa.htm

http://www.islandia.is/krfi/saga.htm

http://saga.khi.is/valkostir/drifa.htm

Almennar heimildir

http://www.menning.is/rithofundar.html

http://www.natmus.is/bokasafn/Sagnfr%E6%F0i.htm

http://www.hi.is/nam/saga/kennarar/gunnark-rit.html

http://hib.arctic.is/hib.html

http://www.ma.is/afangar.asp?cat=afangi&askst=SAG&Anumer=203&show=Námsefni

http://www.strik.is/saga/atridisord/merkirmenn/

Ég mæli með google.com sem leitarvél.
Gott er að slá inn leitarorði og velja síðan flipa sem nefnist myndir ef ykkur vantar myndefni.

Efst á síðu

Ferli
  1. Ræðið verkefnið í hópnum og afmarkið það.

  2. Kynnið ykkur hvað er til af heimildum bæði á Netinu og á bókasafninu.

  3. Skiptið heimildum réttlátlega á milli ykkar.

  4. Ræðið hvaða upplýsingar þið hafið fundið og hverjar þið ætlið að nota. Ekki gleyma að myndir lífga upp á bæði plakatið og vefsíðuna.

  5. Skiptið á milli ykkur verkum, hverjir sjá um plakatavinnuna og hverjir vefsíðuna.

  6. Munið að tala saman og skiptast á skoðunum hvernig þið viljið sjá verkefnið ykkar líta út.

  7. Farið reglulega yfir það sem komið er og hvort allir eru sáttir við það.

  8. Þegar verkefninavinnu er lokið á að undirbúa kynninguna, bæði plakatið og vefsíðuna.

  9. Ákveðið hver segir hvað og hvernig. Farið í gegnum ferlið nákvæmlega frá upphafi til enda svo að bekkjarfélögum ykkar leiðist ekki.

Mat


Verkefnið gildir 10% á móti vorprófi sem gildir 90%.
Nemendur munu meta verkefni hvers annars og skila mati sínu á sérstöku eyðublaði til kennara. Einkunnin skal skilast sem hópeinkunn og verða allir í hópnum að vera sammála niðurstöðunni. Gefa skal 50% fyrir plakatið og 50% fyrir vefsíðuna.

Efst á síðu

Niðurstaða


Eftir að hafa unnið þetta verkefni ert þú búin (búinn) að kynna þér nánar hluta af námsefni vetrarins og verða sérfræðingur bekkjarins á þessu sviði. Þú ert einnig búin (búinn) að kynna og kenna bekkjarfélögunum það sem þú lærðir og auka þannig við þekkingu og skilning þeirra á verkefninu.

Síðast uppfært 22.04.02

Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.