|
Vefleiðangur
um báta og siglingar
eftir
Guðfinnu
G. Guðmundsdóttur

Kynning
| Verkefni| Bjargir | Ferli
| Mat | Niðurstaða
Kynning
Velkomin í
þennan vefleiðangur. Nú gefst ykkur tækifæri
til að gerast bátasmiðir og reyna hæfni ykkar sem
skipstjórar. Þið eigið að hanna ykkar eigin bát,
smíða hann og taka síðan þátt í
æsispennandi siglingakeppni.


Verkefni
Þátttakendur
hanna litla báta og útbúa þá. Því
næst þarf að finna hentugan læk og kanna hvaða
bátur stendur sig best í siglingu niður eftir læknum
fyrirfram ákveðna vegalengd.



Bjargir
Nokkrar krækjur sem fróðlegt getur verið
að skoða:
Heimasíða
siglingafélagsins Ýmis Kópavogi
http://www.isisport.is/felog/ymir/
Ýmsar áhugaverðar
síður tengdar siglingum
http://www.toto.is/sil/annad.htm
Myndir og uppplýsingar
á ensku um báta
http://www.boatshow.com/
Vefur á
ensku um báta
http://www.searay.com/
Vefsíður
á ensku um bátagerð
http://www.boatbuilding.com/
Vefsíða
kajakklúbbsins
http://this.is/kayak/
Sportbúð
Títan, myndir og fróðleikur um báta
http://www.sportbud.is/main.php3?sida=main.html&haegrival=on


Ferli
- Þátttakendur
ræða verkefnið og koma með tillögur að efnivið
í bátana.
- Þátttakendum
er skipt í hópa (3-5 í hóp) og skipaðir
hópstjórar.
- Hver hópur
hannar og gerir teikningu af bát.
- Hver hópur
útbýr sér bát og útvegar sér
langa spýtu eða stöng.
- Hóparnir
hittast og láta bátana sigla.
Fulltrúar
frá hópunum setja bátana á flot.
Mikilvægt
er að hóparnir komi sér saman um hvaða reglur
eiga að gilda í siglingakeppninni.
Þátttakendur
skiptast á að gæta þess að þeirra bátur
strandi ekki.
Notið langa
spýtu eða stöng til að losa bátinn ef hann
strandar.
Ekki má
ýta bátnum áfram. Um það sér straumurinn
í læknum.
Hafið þetta
í huga þegar þið vinnið verkefnið:
Skoðið efni
á Netinu og í bókum. Skoðið hvernig bátar
eru hannaðir með það fyrir augum að þeir séu
fallegir og hraðskreiðir. Mikilvægt er að bátarnir
fljóti vel og séu rennilegir.

Hugmynd:
Þið
gætuð nýtt þann fróðleik um báta
og siglingar sem þið hafið aflað ykkur og haldið
áfram á þessari braut og t.d. tekið þátt
í starfi siglingaklúbbs.


Mat
Hópurinn
sem á bátinn sem kemur fyrstur á áfangastað
sigrar í siglingakeppninni en einnig verður gefin umsögn
um hönnun og gerð bátanna og samvinnu í hópunum.
.


Niðurstaða
Markmið
verkefnisins er að þátttakendur vinni saman að sameiginlegu
markmiði og eigi saman ánægjulega stund úti í
náttúrunni. Jafnframt er stefnt að því
að vekja áhuga á siglingaíþróttinni.

Góða
skemmtun.

©
Guðfinna G. Guðmundsdóttir
Seinast uppfært
30.05.2001
Skilasíða
Salvör
Gissurardóttir þýddi þetta snið frá
The Webquest Page.
|