Kópavogur                              

 



 

Forsíða

Um vefinn

Saga Kópavogs

Skólar

Íþróttir og tómstundir

Menning
og listir

Þjóðsögur og sagnir

Verkefni

 

 

 

Sundlaug KópavogsMöguleikar til íþrótta- og tómstundastarfs í Kópavogi eru mjög miklir. Íþróttafélögin eru níu og í bænum eru tvö stór íþróttahús Smárinn og Digranes og fjögur minni, salur dansfélagsins, tennishöll, reiðhöll, reiðvöllur, golfvöllur, tvö íþróttasvæði, malarvöllur, tólf sparkvellir, tíu körfuboltavellir, tennisvellir og Kópavogsvöllur, sem er aðalíþróttaleikvangur bæjarins. Sundlaug Kópavogs er stærsta sundlaug landsins, 50 x 25 metrar.

Í bænum eru starfandi nokkur íþrótta- og tómstundafélög. Hægt er að kynna sér starfsemi félaganna með því að skoða það efni sem þau hafa sett á Netið en besta leiðin er auðvitað að gerast virkur þátttakandi.

Bridgefélag Kópavogs hefur aðsetur að Hamraborg 11.

Dansfélagið Hvönn er yngsta íþróttafélag bæjarins. Félagið hefur aðstöðu í Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar í Auðbrekku og er einnig með æfingar í íþróttahúsi Kópavogsskóla.

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) hefur til umráða svæði í Vetrarmýri á mörkum Garðabæjar og Kópavogs. Þar er nú 18 holu golfvöllur, en auk þess minni völlur með stuttum brautum og aðstaða er fyrir púttæfingar.

Handknattleiksfélag Kópavogs, HK. Félagsmenn leggja stund á knattspyrnu, karate, Tae Kvon Do og blak auk handknattleiks. Félagssvæði HK er í Fossvogsdal. Þar er grasæfingasvæði, búningsklefar og keppnisvöllur. HK tók við daglegum rekstri íþróttahússins Digraness árið 1992 og rekstri svæðisins í Fossvogsdal árið 1999.

Hestamannafélagið Gustur hefur aðstöðu í Glaðheimum. Þar eru hesthús félagsmanna, reiðvöllur og reiðskemma með félagsaðstöðu.

Íþróttafélagið Gerpla var stofnað 1971. Félagið hefur aðstöðu í eigin húsi sem var opnað árið 1981. Í húsinu er einn aðalsalur, tveir minni æfingasalir og fimleikagryfja.

KFUM og KFUK, Félagsheimili Lyngheiði 21.

Leikfélag Kópavogs, Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2.

Siglingafélagið Ýmir hefur félagsaðstöðu á félagssvæði sínu við Vesturvör í Fossvogi.

Skotfélag Kópavogs hefur aðstöðu í kjallara íþróttahússins Digraness.

Tennisfélag Kópavogs á þrjá útitennisvelli á skjólgóðum stað við Tennishöllina.

Tennishöllin er einkafyrirtæki sem býður upp á sex innivelli til tennisiðkunar allt árið.

Ungmennafélagið Breiðablik var stofnað 1950. Deildir félagsins eru knattspyrnudeild, handknattleiksdeild, frjálsíþróttadeild, skíðadeild, karatedeild og sunddeild. Félagssvæði Breiðabliks er í Kópavogsdal. Þar er sandgrasvöllur, grasæfingasvæði og íþróttahúsið Smárinn.

Skátafélagið Kópar hefur aðstöðu að Borgarholtsbraut 7. Árið 1969 var Hjálparsveit Skáta í Kópavogi - HSSK stofnuð og hefur hún aðstöðu að Bakkabraut 2.

Taflfélag Kópavogs hefur aðstöðu að Hamraborg 54.

EFST Á SÍÐU


©Guðfinna G. Guðmundsdóttir                                                        Síðast uppfært 05.04.2004