Kópavogur                              

Skilasíða



 

Forsíða

Um vefinn

Saga Kópavogs

Skólar

Íþróttir og tómstundir

Menning
og listir

Þjóðsögur og sagnir

Verkefni

 

 

 

KópavogsbærKópavogur hefur vaxið afar hratt á stuttum tíma - þróast frá því að vera nokkur hús án nokkurrar þjónustu í að verða næststærsta sveitarfélag landsins með alla þjónustu. Á þessum vef er að finna nokkurn fróðleik um bæinn.

Árið 1945 voru íbúar í Kópavogi 521 að tölu. 11. maí 1955, þegar Kópavogur fékk kaupstaðarréttindi, voru íbúar 3.783. 1. desember árið 2000 voru íbúar Kópavogs 23.578.

Þjónustan í Kópavogi nær ekki bara til Kópavogsbúa heldur er í bæjarfélaginu rekin öflug þjónusta fyrir allt höfuðborgarsvæðið enda er bærinn afar miðsvæðis. Ekki má heldur gleyma menningunni sem blómstrar í Kópavogi.

Í Kópavogi eru mörg öflugustu fyrirtæki landsins á sviði verslunar og þjónustu og mikil uppbygging stendur nú yfir á því sviði. Í Kópavogi er einnig myndarleg höfn. Merki bæjarins er sótt til fyrstu kirkjunnar á staðnum, Kópavogskirkju.

Kópavogskirkja var teiknuð af Herði Bjarnasyni, húsameistara ríkisins. Hún var vígð árið 1962, fögur bygging og sérstæð, þar sem hún stendur hátt í Borgarholtinu í miðjum bænum. Steindir gluggar í kirkjunni eru eftir Gerði Helgadóttur myndhöggvara.

©Guðfinna G. Guðmundsdóttir                                                        Síðast uppfært 03.05.2004