Vefleiðangur um Kópavog

eftir

Guðfinnu G. Guðmundsdóttur

KÓPAVOGUR

Kynning | Verkefni| Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða

Kynning

Íbúum í Kópavogi hefur fjölgað mjög hratt á undanförnum árum. Fólk hefur komið víðs vegar að af landinu og sest að í Kópavogi. Hvernig ætli standi á því? Hvernig er að búa í Kópavogi? Hvað hefur bærinn upp á að bjóða? Hverjir eru kostirnir og eru einhverjir gallar? Ykkar hlutverk er að leita svara við þessum spurningum.

 

EFST Á SÍÐU


Verkefni

Nemendur safna upplýsingum um Kópavog og útbúa bækling um bæinn.


Gætið þess að allar upplýsingar séu réttar og uppsetning skipuleg. Leggið ykkur fram um að hafa bæklinginn aðlaðandi. Vandið fyrirsagnir, stafsetningu og málfar. Notið myndir til skýringa og til skrauts.

 


EFST Á SÍÐU

 


Bjargir

Á eftirfarandi slóðum er að finna upplýsingar um Kópavog:

Upplýsingavefur Kópavogsbæjar
http://www.kopavogur.is

Myndir úr Kópavogi - Íslandsvefurinn
http://www.islandsvefurinn.is/myndir/sw/swt/kopavogur/

Vefsíður um Kópavog
http://www.ismennt.is/not/ggg/kopavogur.htm

Vefsíður á ensku um Kópavog
http://mk.ismennt.is/vor2000/petur/skil3/index.htm

Almennar upplýsingar t.d. um ýmsa þjónustu í Kópavogi http://www.travelnet.is/isl/Journey/sv_hb/kopavogur.htm

Um útivistarsvæði í Kópavogi
http://mk.ismennt.is/nemv99/agust/lok/utivist.html

Vefsíður nemenda um Kópavog
http://hjallaskoli.kopavogur.is/nemendur/verknemenda/heimasidur/5vh/kopavogur.htm

http://hjallaskoli.kopavogur.is/nemendur/verknemenda/heimasidur/5gg/kopavogur.htm

Vefsíða Sigurðar Geirdal bæjarstjóra Kópavogs
http://geirdal.kopavogur.is


Bækur sem geta komið að góðum notum:

Handbók Kópavogs 2000. Útgefandi: Kópavogsbær.
Saga Kópavogs. 1990. Saga lands og lýðs á liðnum öldum. Árni Waag.
Saga Kópavogs. 1990. Þættir úr kaupstaðarsögunni 1955-1985. Andrés Kristjánsson og Björn Þorsteinsson.
Við byggðum nýjan bæ. 1988. Æviminningar Huldu Jakobsdóttur.
Þjóðsögur og sagnir úr Kópavogi. 1995. Anna Hedvig Þorsteinsdóttir og Inga Þóra Þórisdóttir.


EFST Á SÍÐU

 


Ferli
  1. Nemendur ræða verkefnið og koma með tillögur að viðfangsefnum.
  2. Nemendum er skipt í hópa (3-5 í hóp) og skipaðir hópstjórar.
  3. Hóparnir skipta með sér verkum, til dæmis:

    hópur 1 fjallar um skólamál
    hópur 2 fjallar um íþróttir og/eða tómstundir
    hópur 3 fjallar um atvinnumál
    hópur 4 fjallar um menningarmál
    hópur 5 fjallar um samgöngumál
    hópur 6 fjallar um sögu bæjarins


  4. Þegar bæklingurinn er tilbúinn verður munnleg kynning þar sem hver hópur segir frá viðfangsefninu sem hann vann með.

Hafið þetta í huga þegar þið vinnið verkefnið:

Skoðið efni á Netinu og í bókum. Gætið þess að skrá hjá ykkur og safna saman öllum mikilvægum upplýsingum sem þið rekist á og prentið þær út. Þið eigið að safna textanum saman frá öllum hópum og búa til bækling um Kópavog.

Hugmynd:        

Þið gætuð komið niðurstöðum ykkar á framfæri við Kópavogspóstinn, veffang: http://www.kp.is. Kópavogspósturinn er óháð fréttablað Kópavogsbúa sem kemur út annan hvern fimmtudag og fer inn á öll heimili, fyrirtæki og stofnanir í Kópavogi endurgjaldslaust.


EFST Á SÍÐU




Mat

Þetta er hópverkefni. Kennari gefur einkunn fyrir frammistöðu og frumkvæði hópsins. Virkni einstaklinga innan hópsins og samvinna verður metin sérstaklega.

 

EFST Á SÍÐU

 


Niðurstaða

Markmið verkefnisins er að nemendur kynnist Kópavogi og þjálfist í að afla sér upplýsinga á Neti og í bókum. Að leiðangrinum loknum ættu allir að vera orðnir fróðari um bæinn og búa yfir reynslu sem nýtist vel til frekara náms.

Fyrir þá sem tök hafa á væri tilvalið að fara í vettvangsferð og heimsækja einhverja þá staði sem fjallað er um í bæklingnum.

Gangi ykkur vel.

 

EFST Á SÍÐU

 


Seinast uppfært 05.04.2004
© Guðfinna G. Guðmundsdóttir

Skilasíða

Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.