Kópavogur |
||||
|
|
||||
|
Bókasafn Kópavogs var stofnað vorið 1953 og árið 1981 flutti það í núverandi húsnæði að Fannborg 3-5. Náttúrufræðistofa Kópavogs var opnuð í desember 1983. Meginuppistaða safnsins er skeldýrasafn keypt af Jóni Bogasyni. Þá er í safninu gott fugla- og steinasafn. Í safninu eru einnig fjögur stór fiskabúr með lifandi lífverum, fiskum og hryggleysingjum. Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn, sem ber nafn Gerðar Helgadóttur myndhöggvara, var opnað í apríl 1994. Síðan safnið tók til starfa hafa þar verið haldnar á annað hundrað myndlistarsýningar af ýmsu tagi, fjölmargir tónleikar, bókmenntakynningar og önnur menningarstarfsemi farið þar fram.
©Guðfinna G. Guðmundsdóttir Síðast uppfært 05.04.2004 |
||||