|
SKILASÍÐA
Námsumhverfi
á vefnum
Á námskeiðinu Upplýsingatækni í
menntun og tölvumenning í skólum (UMTS) fyrir áramót
vorum við þrjár, Guðfinna G. Guðmundsdóttir,
Guðfinna Emma Sveinsdóttir og Helga Svavarsdóttir sem
unnum saman verkefni sem við nefndum Upplýsingatæknin
og söguaðferðin http://www.ismennt.is/not/ggg/kynning.htm
og ætlum við (þ.e. Guðfinnurnar tvær með
góðfúslegu leyfi Helgu) að byggja á þeirri
vinnu við okkar tillögu að námsumhverfi á vefnum.
Vefleiðangrar
hafa verið nýttir í mörgum námsgreinum.
Söguaðferðin er kennsluaðferð sem hefur reynst mörgum
kennurum og nemendum þeirra mjög vel og með því
að flétta þessar aðferðir saman og nýta
þá möguleika sem tæknin býður upp á
er hægt að gera góða aðferð enn betri. Þegar
verið er að vinna verkefni samkvæmt söguaðferðinni
er mikilvægt að afla gagna og ættu möguleikar á
að afla efnis á Netinu að geta komið sér vel.
Í söguaðferðinni er lögð áhersla á
að kenna nemendum sjálfstæð vinnubrögð,
að afla sér upplýsinga og miðla því
sem þeir hafa lært. Þessi vinnubrögð henta
vel við nám á Netinu.
Þegar vefleiðangri og söguaðferð er fléttað
saman má hugsa sér vefleiðangur sem er hannaður
út frá hugmyndafræði söguaðferðarinnar.
Hugmyndin sem sett verður hér fram byggist á því
að vefleiðangurinn verði settur fram á vef sem staðsettur
er á Netinu. Við köllum vefinn Ævintýravefinn
og má sjá hugmynd að útliti vefsins á
slóðinni http://www.andakill.is/helga/aevintyravefur Á
upphafssíðu Ævintýravefsins verður að
finna vefleiðangur með krækjusafni, söguramma (söguþráð),
upplýsingar til þátttakenda, foreldra og kennara um
verkefnið. Vísað verður í markmið aðalnámskrár
og tengingar verða í vefsíður hópanna sem
eru að vinna verkefnið, en það geta verið hópar
í mismunandi skólum. Gert verður ráð fyrir
spjallsvæði eða vefráðstefnu þar sem nemendur
geta skipst á skoðunum og miðlað þekkingu um
verkefnið óháð staðsetningu.
Á vefnum verður miðstöð verkefnisins. Nemendur
fara inn á síðuna til að fá fyrirmæli
en verkefnið gengur út á að þegar ákveðið
verkefni hefur verið leyst þá fá nemendur næstu
fyrirmæli. Hver kafli hefur ótakmarkaða möguleika
þar sem hver nemandi getur kannað og lagt fram sinn skerf út
frá eigin reynslu og hugmyndum. Á vefinn bætast síðan
við lykilspurningar, upplýsingar og ævintýri,
gjarnan í formi óvænts atburðar sem sögupersónurnar
lenda í eftir því sem sagan heldur áfram. Nemendur
geta tekið þátt í verkefninu út frá
eigin þroska og getu og skoðað verkefnin meðan þau
eru í vinnslu og rætt saman um þau. Tölvutæknin
gerir okkur kleift að hafa innleggin ólík milli hópa
þannig að verkefnin þróast í ólíkar
áttir vegna mismunandi atburðarrásar hjá hverjum
hópi. Þannig geta nemendur ekki hermt beint eftir öðrum
hópum og einnig verður spennandi að sjá mismunandi
þróun verkefna með sama upphaf.
Nemendur vinna heimasíðu jafnóðum og þeir
vinna verkefnið. Á heimasíðu hópsins kemur
fram atburðarásin sem sögupersónur lenda í
ásamt úrlausnum á verkefnum. Verkefnin verða
miðuð við að þjálfa nemendur í upplýsingatækni
og taka mið af makmiðum aðalnámskrár þar
um. Þrátt fyrir það er gert ráð fyrir
að halda í aðrar vinnuaðferðir sem reyna á
sköpun og aðra færni. Má t.d. nefna að teikna
og skanna myndir, taka stafrænar myndir og útbúa ýmsa
hluti. Áhersla verður lögð á að hafa verkefnavinnuna
fjölbreytta og nýta bæði möguleika tækninnar
og hugmyndaflug og sköpunargáfu nemenda. Hægt er að
fara í vettvangsferðir og þá er upplagt að
taka myndir og bæta við safnið þegar heim er komið.
Myndirnar er hægt að taka á venjulega myndavél,
stafræna vél eða myndbandsupptökuvél.
Til að nemendur bæti við þekkingu sína og tileinki
sér námsefnið betur er hugsanlegt að þeir
vinni verkefni við hver kaflaskil. Þeir geta t.d. sent þau
til kennarans sem fer yfir þau og bendir nemendum á hvað
megi betur fara. Einnig er hægt að útbúa gagnvirk
verkefni sem nemendur vinna til að meta eigin árangur.
Möguleiki
er á að láta nemendur halda dagbók á Netinu
og gefa þeim þannig tækifæri til að tjá
hug sinnar persónu meira en tími gefst til í kennslustundum.
Þá eru slík skrif þjálfun í ritun.
Kynning á verkefninu getur verið margvísleg. Foreldrar
geta heimsótt bekkinn sem kynnir vefsíðuna og ævintýri
sín, einnig er hægt prenta út efnið og safna á
veggspjald á hefðbundinn hátt. Tilvalið er að
fá sérfræðing í heimsókn og getur
þá kynning farið fram í kennslustofu en einnig
væri hægt að nota fjarfundabúnað. Einnig væri
hægt að hafa vefráðstefnu t.d. á spjallrás
á Netinu þar sem nemendur ræða saman um verkefnið.
Hægt er að bjóða foreldrum og/eða sérfræðingi
þátttöku í ráðstefnunni.
EFST
Á SÍÐU
©
Guðfinna G. Guðmundsdóttir
og Guðfinna Emma Sveinsdóttir
Síðast
uppfært
30.05.2001
|