SKILASÍÐA

Netsamskipti            

Á námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu hafa netsamskipti aðallega farið fram á vefráðstefnu (Webboard), vefsíðu námskeiðsins og með tölvupósti. Ég hef fylgst með og tekið þátt í því, aðeins notað spjallið á vefráðstefnunni og þann möguleika að bjalla í aðra þátttakendur.

Ég hlóð inn spjallrás frá Yahoo og prófaði að spjalla og í kjölfarið safnaðist að mér talsvert af óæskilegu efni sem ég hafði varla við að eyða, en spjallið gekk ágætlega.

Einnig náði ég mér í Windows Netmeeting sem ég notaði aðeins í samvinnu við samnemendur. Þar sem við erum með venjulega símalínu lentum við í basli með hljóðið í Netmeeting en verkfærið finnst mér skemmtilegt.

Ég prófaði að færa inn annála á Pitas.com og fékk mér síðan svæði á Blogger.com og hef aðeins fengist við að skrá. Ég er með svæðið á Blogger.com og hefur gengið bærilega að komast þangað en ekki alltaf gengið ef ég hef lent á annatíma. Svæðinu hef ég haldið fyrir mig og ekki staðið fyrir neinni útgáfu, en ef þú vilt skoða er það velkomið. Notendanafnið er finna og aðgangsorðið 123.

© Guðfinna G. Guðmundsdóttir                                                             Síðast uppfært 31.05.2001