|
Prófun/umræða um verkfæri
Eftir að hafa prófað nokkrar vélar og tekið þátt í umræðunum hef ég aðallega notast við goggle.com og leit.is. Við vefsíðugerð á námskeiðinu hef ég aðallega notað forritin Dreamweaver og FireWorks. Sýnismöppuna vann ég í FrontPage og einnig gerði ég tilraunir með myndvinnslu í PhotoShop. Ég fékk mér vefsvæði á Geocities og bjó til einfalda vefsíðu með þeim verkfærum sem þar er boðið upp á. Slóðin er http://www.geocities.com/alfaheidi/index.html. Hjá Geocities fékk ég mér teljara og gestabók. Þér er velkomið að senda mér skilaboð eða skoða gestabókina. Ég skoðaði og prófaði þau verkfæri til námsefnisgerðar sem boðið er upp á hjá Hot Potatoes og hef hug á að nýta mér þau við gerð kennsluefnis. Ég fékk lánaða stafræna myndavél í gagnasmiðju KHÍ og tók myndir sem ég hef síðan verið að vinna með. Myndirnar er að finna í verkefnunum sem ég hef verið að vinna og m.a. bjó ég til myndaalbúm. Ég skoðaði og prófaði Napster og leist vel á.
Heil og sæl Við ákváðum að skoða vefinn kennari.is, sem kennarar í leit að verkfærum til námsefnisgerðar á vef. Útlit upphafssíðu
vefsins er mjög smekklegt, einfalt og stílhreint. Hæfilega
mikið er á síðunni og hún rúmast vel
á skjánum. Hægt er að stækka letrið
sem er helst til smátt fyrir sjóndapra. Letrið er Times
New Roman, sem er ekki nógu læsilegt, að okka mati. Með einum smelli vorum við komnar á verkfærasíðuna en þar þurftum við að skruna niður til að fá yfirlit yfir þau verkfæri sem í boði eru. Siðurnar voru fljótar að koma upp. Það kemur greinilega fram, efst á síðu, hver er höfundur og rétthafi vefsins. Letur er Times New Roman og í töflu má sjá það skáletrað, sem okkur hugnast ekki. Vefurinn er nýlegur sem kemur fram í kynningu höfundar á vefnum en margar síður eru án dagsetninga. Krækjur virka vel og komumst við eftir skrunið á síðu HotPotatos þar sem verkfærin eru kynnt. Einnig hefur höfundur útbúið íslenska leiðbeiningasíðu fyrir byrjendur um notkun á HotPotatos. Okkur lýst vel á þennan vef og hyggjumst sækja þangað upplýsingar í framtíðinni. Guðfinna G., Guðfinna E. og Oddný.
© Guðfinna G. Guðmundsdóttir Síðast uppfært 31.05.2001 |