|
Hér eru nokkrar síður þar sem ég er að gera tilraunir með það sem ég hef verið að læra í FireWorks og Dreamveawer og hef ekki fundið stað í öðrum verkefnum. Möguleikarnir til að breyta myndum og texta eru svo margir að hér verður aðeins rúm fyrir það helsta sem ég hef verið að prófa. Ég hef ekki fengist mikið við myndvinnslu fyrr en nú svo ég fékk lánaða digital myndavél í gagnasmiðju KHÍ og tók nokkrar myndir til að nota í þau verkefni sem ég hef verið að vinna og eins til að kynnast tækninni og æfa mig. Ævintýralegast fannst mér að útbúa myndaalbúm í Dreamweaver og þar kemur best í ljós hve vel forritin Dreamweaver og FireWorks vinna saman. Afraksturinn af þessari tilraun minni er merktur ALBÚM hér til hliðar.
|
||
| © Guðfinna G. Guðmundsdóttir Síðast uppfært 30.05.2001 | ||