Þetta er kennsluvefur
í Upplýsinga- og tölvumennt í Hamraskóla.
UT er þverfagleg námsgrein og koma því
flestir kennarar skólans að þessari námsgrein.
Til að auðvelda kennurum yfirsýn yfir það efni
sem finnst á markaðnum og þá möguleika sem
greinin býður upp á er upplýsingum safnað
á þennan vef. Þær eru fyrst og fremst hugsaðar
sem umgjörð um kennslu skólans í UT og gagnabanki
fyrir kennara til að auðvelda þeim aðgang að upplýsingum
sem finnast á netinu og geta nýst í kennslu.
Einnig eru ýmsar leiðbeiningar til að
læra á forrit sem notuð eru eða nýst gætu
í skólanum til undirbúnings og í kennslu.
Eðli þessa vefs er að hann er í
stöðugri vinnslu þar sem ávallt kemur inn nýtt
efni sem er áhugavert og annað dettur út.
Ósk mín er að sem flestir geti nýtt
þessar upplýsingar sér til gagns.
|