Bútasaumur
Ferðalög
Gönguferðir
 
 
 
 

 

Ég heiti Guðrún Jóna Óskarsdóttir og er kennari í Hamraskóla í Grafarvogi. Þetta árið kenni ég eingöngu á tölvur í 3. - 10. bekk, en áður hef ég verið í bekkjarkennslu hjá yngsta- og miðstigi. Ég hef ýmis áhugamál. Hef gaman af gönguferðum og ferðalögum, bæði innanlands og utanlands. Fór síðasta sumar í skemmtilega jeppaferð um hálendið norðan Vatnajökuls. Var þetta mikil ævintýraferð, þar sem m.a. Gæsavatnaleið var farin. Í næsta páskafríi ætla ég ásamt manni mínum að fara til Kína, kannski hægt að nýta efni úr þeirri ferð á vefinn.
Ég er gift Magnúsi S. Magnússyni og á þrjú börn tvo drengi Hlyn 26 ára og Frey 23 ára og eina dóttur Matthildi, sem er 17 ára. Ég hef einnig gaman af handavinnu, hef prjónað margar peysur og saumað heilmikinn bútasaum. Inn á milli reyni ég að hafa áhuga á leikfimi og hollri hreyfingu. Helst vildi ég skokka, en bakið er ekki alveg nógu gott til þess.