Vefleiðangur
Vefleiðangur gerður fyrir nemendur í 7.bekk. Verkefni unnið í samvinnu við bekkjakennara og bókasafnskennara.
Aðalsíða
Skilasíða
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Börn á miðöldum

Kynning

Bekkurinn þinn hefur verið fluttur með tímavél aftur til miðalda. Þið búið í Englandi á bóndabæ og eruð 12 ára gömul. Rétt hjá er tígulegur kastali uppi á hæð og gnæfir yfir sveitina.

Verkefni

Verkefnið ykkar er að lifa ykkur inn í hvernig er að vera barn á þessum tíma og lýsa lífinu sem þessi börn upplifa miðað við ykkar líf árið 2003.

Vinnið saman í 4 manna hópum til að finna svör við eftirfarandi spurningum.
1. Í hvernig fötum ertu?
2. Hvað borðar þú í kvöldmat?
3. Hvernig notarðu frítímann þinn?
4. Við hvað vinnur þú?
5. Hvaða menntun færðu og hvernig?
6. Hvaða möguleika áttu á frama?
7. Hvernig heldur fjölskylda þín upp á jólin?
Bjargir

http://www.strik.is/saga/midaldir/

http://kotn.ntu.ac.uk/castle/

http://www.kyrene.k12.az.us/schools/brisas/sunda/ma/1michael.htm

http://www.historyforkids.org/learn/medieval/

http://google.com

Ferli

1. Þið lesið saman bls. 77-95 í Grænkápu.

2. Safnið upplýsingum frá a.m.k. þremur prentuðum heimildum og fjórum netheimildum.

3. Opnið Word skjal og skrifið niður svör fyrir hverja spurningu.

4. Búið til spjald þar sem borinn er saman mismunur á lífi barna á miðöldum og í dag.

5. Skrifaðu skáldsögu sem gerist í kastala um lífið á miðöldum.

Námsráð

Mundu að nota efnisyfirlit þegar þú leitar í bókum.

Til að fara aftur í verkefnið notar þú back takkann.

Mat
Eftirfarandi verður notað til að meta frammistöðu þína í þessu verkefni. Þú verður metinn eftir því sem hópurinn þinn skilar inn og þinnar eigin vinnu í verkefninu.

Verkefnið
Byrjun
1
Þróun
2
Lok
3
Einingar

Áreiðanleiki
       
Sköpun        
Vandvirkni        

Einingar
samtals

       
Ferlið/
vinnubrögð
Ekki skoðað
Sæmilegt
Gott
Mjög gott
Frábært
Vinna kláruð á réttum tíma          
Vann vel í hóp          
Hélt sig við efnið          
Notaði tölvu sem hjálpartæki          
Notaði skráðar vefsíður          
Kynning fyrir bekk          
Skipulagðar upplýsingar          
Samanlagðar einingar          
Niðurstaða

1. Var líf barna á miðöldum mjög frábrugðið lífi barna í dag?
2. Var fjölskyldan mikilvæg á miðöldum?