Námskrá Hamraskóla í tölvukennslu
Veturinn 2002-2003

Aðalsíða
Námskrá Harmraskóla í tölvukennslu
 Skólalíf
Kennsluefni
Google.com
Morgunblaðið
Hamraskóli
Vísindavefurinn
Barnung
 
Tölvukennsla 1.bekkur.

Markmið
Að nemendur:
- læri að kveikja og ganga frá tölvu eins og ætlast er til í tölvustofu.
- þjálfist í að sitja rétt við tölvu
- læri að nota teikniforrit
- læri að nota mús
- geti prentað skjal
- kynnist einföldum kennsluforritum
- kynnist staðsetningu stafa og talna á lyklaborðinu samhliða öðru námi

Kennsluaðferðir
Sýnikennsla, verklegar æfingar.

Námsmat
Verkefnum er safnað saman í lok kennslustunda og verða metin. Matið byggist á ástundum, vandvirkni og hæfni.

Námsefni
Ýmis kennsluforrit sem hæfa aldri og styðja við annað nám sem fram fer í skólanum. Teikniforritið Paint og myndvinnsluforrit .

Fjöldi kennslustunda
Hver nemandi fær 1 kennslustund á viku yfir veturinn.

Tölvukennsla 2.bekkur.

Markmið
Að nemendur
- átti sig á hvernig lyklaborðið skiptist í hægri og vinstri hluta
- geti ritað texta í ritvinnslu
- kunni að nota sérlykla eins og t.d. eyða texta, leiðrétta texta og rita stóra stafi
- geti vistað skjöl og náð í vistuð skjöl á hörðum diski og disklingi
- geti nýtt sér efni af margmiðlunardiskum
- fari aðeins inn á veraldarvefinn

Kennsluaðferðir
Sýnikennsla, verklegar æfingar.

Námsmat
Verkefnum er safnað saman í lok kennslustunda og verða metin. Matið byggist á ástundum, vandvirkni og hæfni.

Námsefni
Ýmis kennsluforrit sem hæfa aldri og styðja við annað nám sem fram fer í skólanum. Teikniforritið Paint, ritvinnsluforritð Word Pad og myndvinnsluforrit . Veraldarvefurinn. .

Fjöldi kennslustunda
Hver nemandi fær 1 kennslustund á viku yfir veturinn.

Tölvukennsla 3.bekkur

Markmið
Að nemendur
- þekki mun á kennsluforritum og leikjum
- geti sótt efni á vef skólans
- geri einfalda leit á veraldarvefnum
- kunni að nota takka sem notaðir eru í staðinn fyrir mús, t.d. færsluhnapp, örvalykla og lykla til að opna og loka forritum
- læri að beita réttri fingrasetningu

Kennsluaðferðir
Sýnikennsla og verklegar æfingar.

Námsmat
Verkefnum er safnað saman í lok kennslustunda og verða metin. Matið byggist á ástundum, vandvirkni og hæfni.

Námsefni
Ýmis kennsluforrit sem hæfa aldri og styðja við annað nám sem fram fer í skólanum. Ritþjálfunarforritið Ritfinnur, teikniforritið Paint, ritvinnsluforritið Word Pad og myndvinnsluforrit. Einnig verður farið á veraldarvefinn.

Fjöldi kennslustunda
Hver nemandi fær tvær samfelldar kennslustundir á viku hálfan veturinn. Skiptist á móti myndmennt.

Tölvukennsla 4.bekkur

Markmið
Að nemendur:
- fái þjálfun í fingrasetningu á tölvu
- læri meðferð texta
- kunni að taka myndir á myndavél og meðferð ljósmynda
- geti skeytt myndum inn í texta á tölvutæku formi
- læri að senda tölvupóst
- geti búið til einfaldar heimasíður
- geti nýtt margmiðlunarefni sem inniheldur hljóð og hreyfimyndir

Kennsluaðferðir
Sýnikennsla, verklegar æfingar, vettvangsferðir.

Námsmat
Verkefnum er safnað saman í lok kennslustunda og verða metin. Matið byggist á ástundum, vandvirkni og hæfni.

Námsefni
Ýmis kennsluforrit og margmiðlunarefni sem hæfa aldri og styðja við annað nám sem fram fer í skólanum. Ritþjálfunarforritið Ritfinnur, ritvinnsluforritið Word Pad og Word. Myndvinnsluforrit, t.d. Paint Shop Pro og vefpóstfang sem fengið er á "visir.is".

Fjöldi kennslustunda
Hver nemandi fær tvær samfelldar kennslustundir hálfan veturinn. Skiptist á móti myndmennt.

Tölvukennsla 5.bekkur

Markmið
Að nemendur:
- kunni að búa til möppur og nota möppur í tölvum
- fái þjálfun í fingrasetningu
- læri að nota skanna (myndlesara)
- læri að taka myndir á stafræna myndavél og prenta hana út
- geti skeytt myndum inn í texta
- þekki grunnatriði Word ritvinnslu
- læri að senda tölvupóst

Kennsluaðferðir
Sýnikennsla, verklegar æfingar, vettvangsferðir.

Námsmat
Verkefnum er safnað saman í lok kennslustunda og útbúin úr þeim hefti sem metin verða í lok annar. Matið byggist á ástundum, vandvirkni og hæfni.

Námsefni
Ýmis kennsluforrit og margmiðlunarefni sem hæfa aldri og styðja við annað nám sem fram fer í skólanum. Ritþjálfunarforritið Ritfinnur, ritvinnsluforritið Word Pad, Word og myndvinnsluforritið Paint Shop Pro. Umbrotsforritið Publisher og vefpóstfang sem fengið er á "visir.is".

Fjöldi kennslustunda
Hver nemandi fær tvær samfelldar kennslustundir hálfan veturinn. Skiptist á móti myndmennt.

Tölvukennsla 6.bekkur

Markmið
Að nemendur:
- kunni að búa til möppur og nota möppur í tölvum
- fái þjálfun í fingrasetningu
- þekki grunnatriði Word ritvinnslu
- geti skeytt myndum inn í texta
- læri að nota skanna (myndlesara)
- læri að taka myndir á stafræna myndavél og prenta hana út
- gera leit á vefnum og nýta upplýsingar
- kynnist Excel töflureikni
- læri að senda tölvupóst
- geti nýtt sér glærugerðarforrit
- geti notað umbrotsforrit
- gera einfalda heimasíðu

Kennsluaðferðir
Sýnikennsla, verklegar æfingar, vettvangsferðir.

Námsmat
Skólaeinkunn gildir 60% þar sem tekið er tillit til hegðunar, vinnu og frágangs verkefna. Prófseinkunn gildir 40%.

Námsefni
Ritþjálfunarforritið Ritfinnur, ritvinnsluforritið Word, töflureiknirinn Excel og myndvinnsluforriti, t.d Paint Shop Pro. Umbrotsforritið Publisher. Veraldarvefurinn Internet Explorer eða Netscape Navigator og vefpóstfang sem fengið er á "visir.is". Glærugerðin er unnin í PowerPoint.

Fjöldi kennslustunda
Hver nemandi fær tvær samfelldar kennslustundir allan veturinn.

Tölvukennsla 7.bekkur.

Markmið
Að nemendur
- fái aukna þjálfun í fingrasetningu og tileinki sér blindskrift
- þekki grunnatriði Word ritvinnslu
- geti skeytt myndum inn í texta
- geti notað tölvuorðabækur og yfirlestrarforrit á íslensku og öðrum tungumálum.
- geti notað Excel töflureikni til að gera töflur og gröf
- læri að senda tölvupóst og nota reglulega
- læri að nota skanna (myndlesara)
- læri að taka myndir á stafræna myndavél og prenta hana út geti nýtt sér glærugerðarforrit
- kynnist umbrotsforriti
- gera einfalda heimasíðu og flytja út á net
- gera leit á vefnum og nýta upplýsingar

Kennsluaðferðir
Sýnikennsla, verklegar æfingar, vettvangsferðir.

Námsmat
Skólaeinkunn gildir 60% þar sem tekið er tillit til hegðunar, vinnu og frágangs verkefna. Prófseinkunn gildir 40%.

Námsefni
Ritþjálfunarforritið Ritfinnur, ritvinnsluforritið Word, töflureiknirinn Excel og myndvinnsluforrit, t.d. Paint Shop Pro. Umbrotsforritið Publisher. Veraldarvefurinn Internet Explorer eða Netscape Navigator og vefpóstfang sem fengið er á "vísir.is". Glærugerðin er unnin í PowerPoint. Leiðréttingarforritið “Villupúki”. .

Fjöldi kennslustunda
Hver nemandi fær tvær samfelldar kennslustundir allan veturinn.

Tölvukennsla 8.bekkur

Markmið
Að nemendur
- fái aukna þjálfun í fingrasetningu og tileinki sér blindskrift
- þekki grunnatriði Word ritvinnslu
- geti skeytt myndum inn í texta
- geti notað tölvuorðabækur og yfirlestrarforrit á íslensku og öðrum tungumálum.
- geti notað Excel töflureikni til að gera töflur og gröf
- læri að senda tölvupóst og nota reglulega
- læri að nota skanna (myndlesara)
- læri að taka myndir á stafræna myndavél og prenta hana út geti nýtt sér glærugerðarforrit
- kynnist umbrotsforriti
- gera einfalda heimasíðu og flytja út á net
- gera leit á vefnum og nýta upplýsingar

Kennsluaðferðir
Sýnikennsla, verklegar æfingar, vettvangsferðir.

Námsmat
Verkefnum er safnað saman í lok kennslustunda og útbúin úr þeim hefti sem metin verða í lok annar. Matið byggist á ástundum, vandvirkni og hæfni. Próf tekin í lok áfanga. Prófseinkunn gildir 50% og skólaeinkunn gildir 50%.

Námsefni
Ritþjálfunarforritið Ritfinnur, ritvinnsluforritið Word, töflureiknirinn Excel og myndvinnsluforrit, t.d. Paint Shop Pro. Umbrotsforritið Publisher. Veraldarvefurinn Internet Explorer eða Netscape Navigator og vefpóstfang sem fengið er á "vísir.is". Glærugerðin er unnin í PowerPoint. Leiðréttingarforritið “Villupúki”. .

Fjöldi kennslustunda
Hver nemandi fær tvær samfelldar kennslustundir allan veturinn.

Tölvufræðsla
10.bekkur
Val

Markmið
Að nemendur:
- fái aukna þjálfun í fingrasetningu og tileinki sér blindskrift
- þekki grunnatriði Word ritvinnslu
- geti skeytt myndum inn í texta
- geti notað tölvuorðabækur og yfirlestrarforrit á íslensku og öðrum tungumálum.
- geti notað Excel töflureikni til að gera töflur og gröf
- læri að senda tölvupóst og nota reglulega
- læri að nota skanna (myndlesara)
- læri að taka myndir á stafræna myndavél og prenta hana út geti nýtt sér glærugerðarforrit
- kynnist umbrotsforriti
- gera einfalda heimasíðu og flytja út á net
- gera leit á vefnum og nýta upplýsingar

Kennsluaðferðir
Bein kennsla og verklegar æfingar.

Námsmat
Gefin er 100% skólaeinkunn skv. Mati í kennslustundum á báðum önnum (hegðun, vinna og frágangur metin) og 100% prófseinkunn fyrir verkleg próf á báðum önnum.