| Hvaða
gagn geta kennarar haft af norræna og evrópska skólanetinu?
(Fyrirlesari Björn Sigurðsson) |
Kynning
Kynntir verða möguleikar sem norræna skólanetið
odin.dk og evrópska skólanetið eun.org bjóða
upp á, t.d. hvað varðar erlent samstarf og aðgang
að námsefni. Einnig verður sagt frá áhugaverðum
verkefnum sem tengjast skólanetunum, svo sem eSchola. |
| Evrópska
skólanetið var stofnað árið 1997 og
er styrkt af 22 ráðuneytum ýmissa Evrópuþjóða,
auk Evrópubandalagsins og stofnana í einkaeign. Íslenska
menntamálaráðuneytið er styrktaraðili.
Við fyrstu yfirsýn virkar evrópska skólanetið
fráhrindandi og það tekur tíma að átta
sig á möguleikum þess. |
| Helstu
verkefni skólanetsins eru: |
| eSchoolnet
er upplýsinganet fyrir kennara þar sem kennarar geta
fundið verkefni, komist í samband við aðra kennara
og fengið upplýsingar varðandi menntamál. |
|
Virtual
School flokkar efni í 20 námsgreinar. Hér
er hægt að fá ókeypis forrit og umsögn
um þau frá kennurum sem hafa prófað þau,
upplýsingar og tilvísanir í efni á
neti. Þessi síða er uppfærð reglulega.
|
| myEUROPE
er net sem samanstendur af yfir 1500 skólum þar sem
ýmis verkefni eru í gangi. Skólar geta skráð
á póstlista og tekið þátt í
þessum verkefnum og mælti Björn með því
ef við viljum komast í erlend samskipti. |
| ComeniusSpace
er sérstakur vettvangur fyrir þá sem vinna að
Comenius verkefnum |
| Spring
Day in Europe þarna geta nemendur komið að stjórnarskrá
Evrópu og skólum er hjálpað við að
skipuleggja viðburði til að auka umræður.
Einkum ætlað 14-19 ára. |
| eSchola
er árlegur viðburður sem stendur frá 7.apríl
– 9. maí. Í tengslum við eSchola gefst kennurum
tækifæri til að taka þátt í
samkeppni milli UT verkefna sem kennarar hafa samið. Við
skráum okkur á netið og sendum inn upplýsingar
um verkefnið í stuttu máli til að vera með.
Við erum hvött til að taka þátt. Upplýsingar
um þetta eru á menntagatt.is |
| Young
Consumer samkeppni þar sem áherslan er lögð
á neytendamál. Ætlað nemendum og kennurum
þeirra í primary and secundary schools. |
| eXplora
Samkeppni fyrirnemendahópa í framhaldsskólum
sem búa til vefi fyrir jafnaldra sína. |
| ENIS
er sérstakt net frumkvöðla í upplýsingatækni.
Sett eru ákveðin skilyrði fyrir því
að skólar geti orðið frumkvöðlaskólar.
Á Íslandi eru 8 ENIS skólar sem verið er
að fjölga en samanlagt eru um 400 þátttakendur
í Evrópu. |
| ETP
er vísir að evrópskri menntagátt. Efnið
er lýsigagnaskráð og eru lýsigagnaskrár
tengdar saman. |
| safe
er svæði þar sem fjallað er um öryggi á
netinu. |
| Green
Week er ráðstefna og sýning um umhverfismál
þar sem skólum er boðin þátttaka.
Er 2.-6.júní 2003. |
| Valnet
er verkefni sem miðar að því að þróa
og meta námsefni, námsumhverfi og skóla framtíðarinnar. |
| Evrópska skólanetið gefur
út fréttabréf, sem hægt er að fá
í áskrift og fá gegnum tölvupóst.
Einnig er hægt að fá upplýsingar á
enis.org og menntagatt.is. |
| Þegar
hér var komið sögu var fyrirlestrartíminn
úti. Björn minntist aðeins á norræna
skólanerið odin.dk síðustu 4 mínúturnar.
Kom fram að odin.dk vefurinn verður opnaður aftur í
vor eða sumar nýr og endurbættur. Þar vildi
hann benta á kontaktgalleriet, þar sem kennarar/nemendur
geta átt samskipti við aðra kennara/nemendur og ókeypis
svæði fyrir samvinnuverkefni á netinu. Einnig var
barnabókasafnið bibbi, sem er líka á íslensku.
Ýmis þemu eru í gangi, t.d. einelti tungumál,
Norðurlönd, margmiðlun, forrit, leiðbeiningar o.
fl. tímaritið Skolen í Norden og vönduð
krækjusöfn. Þessi vefur er aðgengilegur og
mæli ég með að áhugasamir skoði
hann. |
| Sarepta
er vefur á vegum Norsku geimmiðstöðvarinnar
og landsmiðstöðvar um fræslu sem tengist geimnum.
Þarna má m.a. finna efni sem þýtt hefur
verið á íslensku. Björn náði því
ekki að fjalla um þennan vef. Hann gat aðeins látið
okkur frá dreifirit um hann. |
| Þessi
fyrirlestur var mjög góður og athyglisverður.
Ég tel að opnir skólavefir og samvinnuverkefni
eigi eftir að hafa mikil áhrif á skólastarf
framtíðarinnar. Nú er loksins búið
að opna fyrir það að kennarar geti miðlað
sínum verkefnum og lært hver af öðrum. Ég
held að þetta auki mjög gæði kennslunnar
og hjálpi áhugasömum kennurum að verða
enn betri kennarar. Það er svo sannarlega kominn tími
til að kennarar þurfi ekki hver í sínu horni
að finna upp hjólið. Fyrirlestrartíminn var
allt of stuttur fyrir svo stórt verkefni. Björn átti
eftir að kynna fullt af efni þegar tíminn var úti.
Vonandi gefst tími síðar til að fræðast
meira um þetta. Einnig er að sjálfsögðu
gott að skoða vefina sjálfur. Langar mig að benda
á einn vef til viðbótar sem ekki er nefndur hér
KIDLINK. |