Tæknisaga mín.
Aðalsíða
Skilasíða
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ég ætla að segja frá tæknisögu minni. Ég tók stúdentspróf úr eðlisfræðideild Menntaskólans við Tjörnina. Mér var ráðlagt að fara í þá deild þar sem ég hafði mjög góðar einkunnir í stærðfræði og efnafræði frá MH. Eftir að ég byrjaði í þeirri deild var eðlisfræðikennarinn óþreytandi að segja okkur stelpunum, sem vorum mjög fáar að við hefðum ekkert í eðlisfræðideild að gera og vildi aldrei neitt hjálpa okkur. Mér tókst nú samt að klára þessa eðlifræðideild og missa allan áhuga á öllu því sem hafði með eðlisfræði að gera. Ég fór í KHÍ að loknu stúdentsprófi og síðan beindist áhugi minn að uppeldisfræði og félagsfræði. Í háskólanámi mínu sem fór fram í Svíþjóð tók ég 5 einingar í tölfræði og 5 einingar í félagsfræðinni þar sem við vorum að vinna með rannsóknargögn sem unnin voru í tölvu. Við vorum þá að gata niðurstöður og forrita síðan í forriti sem þá hét að því er mig minnir SPSS. Þetta var ca 1980 og voru mín fyrstu kynni af tölvu, fyrir utan að einhver risastór tölva var notuð til að skipuleggja áfangakerfið í MH.
Maðurinn minn lauk doktorsnámi í Svíþjóð 1985 og vann ritgerðina sína á tölvu. Voru þær tölvur mjög frumstæðar miðað við það sem nú þekkist og var hann oft heilu næturnar að leysa einhver tölvuvandamál. Ég held hann hafi oft eytt meiri tíma í tæknina heldur en ritgerðarvinnuna.
Þegar námi lauk fluttum við búferlum til Íslands og fengum okkur heimilistölvu, til að byrja með var það PC tölva frá Atlantis með einhverju mjög frumstæðu DOS stýrikerfi. Henni var skilað og keypt Macintosh Plús tölva sem var algjör bylting, því allt í einu var allt svo einfalt og manni fannst maður ekki þurfa að kunna neitt. Á þessum árum frá ca. 1982 áttum við líka forláta ritvél með útstrokunarborða og gleri þar sem hægt var að lesa nokkrar línur. Þetta var lúxus ritvél. Síðustu 15 árin höfum við ekki snert ritvél.


Tæknibúnaðurinn á heimilinu í dag er þrjár tölvur (hafa verið fleiri), tvær borðtölvur og ein fartölva og allar nettengdar. Við erum með ADSL tengingu. Þær eru í stanslausri notkun og oft rifist um þær, sérstaklega borðtölvurnar. Við eru með ISDN símakerfi. Það eru tveir þráðlausir símar og einn fastur. Þeir hringja allir þrír þegar hringt er. GSM símarnir eru jafnmargir og íbúarnir, þ.e. fjórir. Við fengum okkur þráðlausan síma fyrir þremur árum og GSM líka. Vorum á móti þessum símum áður, en eftir að við fengum þá eru þeir bráðnauðsynlegir. Það vill enginn tala í tengda símann. Við horfum lítið á sjónvarp. Erum með eitt ódýrt 29 tommu sjónvarp og eitt ódýrt vídeó. Við höfum næstum aldrei verið með stöð 2. Vorum með það tvisvar í þrjá mánuði og fannst ekkert varið í það. Við horfum á Skjá 1 og ríkissjónvarpið. Við erum ekki með breiðband því það er ekki komið í okkar hverfi. Vorum ekki ánægð með það því við viljum fá sænska sjónvarpið og fleiri evrópskar stöðvar


Ég er nú að reyna að læra að nota digital myndavél sem ég ætla að nota í kennslunni. Vélin er keypt fyrir kennsluna. Einnig er það nýtt hjá mér að gera heimasíðu og finnst mér það mjög spennandi. Hlakka mjög til að takast á við Dreamweaver og Fireworks forritin.

Innskot
3 mánuðum síðar.

Nýjasta tækniundrið á heimilinu er Camera PowerShot C-50. Svo nú er myndvinnsla hafin.

Ég gæti haldið lengi áfram með tæknibúnað heimilisins, því flestir heimilismeðlimir eru frekar opnir fyrir nýrri tækni. Nýlega kom hljómborð sem tengt er við tölvu á heimilið, hljómflutningstæki hafa alltaf verið til en þó mismunandi mörg. Synirnir eru mjög tæknivæddir og miklir tölvuáhugamenn, annar lauk námi úr Margmiðlunarskólanum og hefur aðallega áhuga á kvikmyndagerð og tónlist, þar sem notuð er mikil tölvuvinnsla og hinn er rafeindavirki og hefur mikinn áhuga á hljóðvinnslu og hefur komið sér upp hljóðvinnsluveri úti í bæ. Dóttirin er líka mikil tölvuáhugamanneskja en hefur mestan áhuga á Internetinu og að búa til heimasíður um áhugamálin.


Hvað tölvupóst varðar þá eru mörg ár síðan ég fór að nota tölvupóst. Var með þeim fyrstu í vinnunni sem fór fram á að fá netfang. Vann eitt sinn í vinnu þar sem tölvupósturinn var mikilvægur. Hins vegar var ég treg til að gera mig háða póstinum og fara inn á hann daglega þar sem eðlilegur aðgangur að pósti í vinnunni kom mjög seint. Á tímabili var ég næstum brottræk úr saumaklúbbnum því ég las ekki tölvupóstinn þeirra. Mér fannst það móðgandi þar sem þær voru að skrifa úr vinnunni og hafa aldrei verið nettengdar heima hjá sér, sem hefur verið nauðsynlegt fyrir mig sem kennara gegnum árin. Á þessum tíma var nettengingin svo hæg og þær voru alltaf að senda einhvern ruslpóst sem tók hálfan dag að hlaða inn.


Framtíðarsýn mín hvað varðar tölvur er sú að ég verði með heimasíðu sem ég kann vel að stýra. Einnig mun ég eiga fullkomna myndavél þar sem ég set allar myndir í tölvuna og vinn þær í tölvunni. Ég sé að ég á eftir að tölvuvinna flott myndaalbúm fyrir börnin mín með sögu þeirra. Einnig mun ég vinna flottar myndir sem ég nota í bútasaum. Ég mun verða með fullkomna fartölvu, sem ég tek með mér hvert sem ég fer. Ég nota netið mjög mikið til upplýsingaöflunar og t.d. að panta bækur frá amazon.com. Mun gera meira af því í framtíðinni. Ég sé mig líka fyrir mér í því að kenna krökkunum að búa til skemmtilegt margmiðlunarefni sem þau tengja heimasíðu skólans. Þau verða í samskiptum við börn í öðrum löndum og senda á milli sín fróðleik um land og þjóð.