Mannfjöldi á Íslandi árið 2002

Höfundur: Guðrún Jóna Óskarsdóttir
Þetta vefrallý er fyrir 12-16 ára nemendur.

 
Tilgangurinn með þessu verkefni er að finna upplýsingar á vef Hagstofu Íslands um mannfjölda á Íslandi 1. desember 2002. Þið farið inn á fréttasíðu þar sem Hagstofan tilkynnir mannfjöldabreytingar á síðasta ári. Þið eigið að vinna þetta verkefni í 2 -3 manna hópum og það gildir að vera fljótur. Sá hópur sem er fyrstur vinnur. Þið hafið Word skjal opið og færið svörin sem þið finnið inn í það. Það má nota afrita/líma (copy/paste) aðferðina.
  Vefurinn sem þú átt að skoða heitir: http://www.hagstofa.is Þið farið inn á svæði sem heitir Hagtölur og sláið inn í gluggann mannfjöldi 2002. Finnið fréttir frá 20. desember.
 

1. Hvað bjuggu margir á Íslandi 1. desember 2002?

2. Hvað bjuggu margir á höfuðborgarsvæðinu 1. desember 2002?

3. Hvar var fjölgunin mest á Íslandi á síðasta ári?

4. Hvar fækkaði íbúum mest á landinu?

5. Hvaða forrit notar Hagstofa Íslands til að gera töflur og myndrit?

6. Náið í mynd 2, sem sýnir hlutfallslega skiptingu mannfjöldans og færið yfir á svarblaðið ykkar.

7. Þið þurfið að geta útskýrt myndina fyrir öðrum nemendum í bekknum.

8. Skoðið líka mynd 3 og lesið upplýsingar úr henni. Hvað segir myndin ykkur? Skráið hjá ykkur svarið.

 

 
© 2003 Guðrún Jóna Óskarsdótir.
Síðast uppfært 7.feb 2003