© GK

Þessi vefur er unninn í tilefni nemendaskipta Menntaskólans í Reykjavík og l'Exterenat des Enfants Nantais skólaárið 2002 — 2003.

Lagt var upp með íslenskar og franskar samtímabókmenntir í leit að sameiginlegum þáttum í sögu og forsögu þjóðanna. Samtímaskáld hafa sótt innblástur í dularfullar minjar fornrar sögu, jafvel frá því fyrir þúsundum ára. Leitað var að stöðunum sem veittu skáldunum innblástur, forsögulegum steinmannvirkjum og stórfenglegu landslagi þar sem ólgandi haf brýtur land eða gælir gjöfult við það og mennina.

Íslenskir nemendur myndskreyttu frönsku ljóðin með myndum af völdum stöðum á Íslandi og öfugt með ljósmyndum og teikningum og málverkum. Ljóðin voru þýdd og lesin upp og sett fram með myndunum á CD-Rom diski og á netinu.

Jötunsteinarnir frægu í Carnac og víðar á Bretagne-skaga voru skoðaðir. Þeir eru 6.000 ára gamlir. Reynt var að finna samsvörun þeirra á Íslandi.

Íslenskir nemendur lásu ljóðaflokkinn Carnac eftir franska skáldiið Guillevic. Efnivið þessa verks sækir skáldið til fæðingarbæjar síns og sérstaklega til stórfenglegu steinmannvirkjanna frá fimmta árþúsundi fyrir Krists burð. Þá tekur ljóðaflokkurinn mið af ströndinni í grenndinni.

Frönsku nemarnir kynntu sér íslenskan samtímaskáldskap af svipuðum rótum eftir Jón Óskar og Gunnar Harðarson. Þar er efniviðurinn annars vegar fenginn í fjörunni uppi á Akranesi, en hins vegar við Vík í Mýrdal. Sjór og strönd tengist auðvitað báðum löndunum. En íslenska samsvörun við jötunsteinamannvirkin í Vestur-Evrópu fundum við í svokölluðum fjárborgum. Þær eru steinmannvirki, sum jafngömul og Íslandsbyggð og að öllum líkindum arfur frá enn eldri keltneskri byggingarhefð. Þessar byggingar eru efniviður Jóns Óskars í ljóðaflokknum Steinn sem syngur.

Nemendaskipti

MENNTASKÓLANS Í REYKJAVÍK &

EXTERNAT DES ENFANTS NANTAIS

Kynning