Skólinn , Externat des Enfants Nantais var stofnaður
árið 1851 af herra Jacquemet, biskupi í Nantes. Nafnið
vísar til verndardýrlinga Nantes sem liðu píslarvættisdauða
í barnæsku. Skólinn var þá drengjaskóli
sem var stjórnað af prestasamfélagi. Í dag eru bæði
drengir og stúlkur í skólanum. Skólinn er nú
til heimilis við Avenue Camus í Nantes. Auk menntaskóla
eru við stofnunina þriggja ára gagnfræðaskóli
og tveggja ára undirbúningsnám undir sérskóla
á háskólastigi. Skólinn er í samstarfi
við erlenda skóla á Spáni, í Bandaríkjunum,
Kanada og Ástralíu og nú við Menntaskólann
í Reykjavík.