Enn einu sinni
Hvað getum við gert,
Við sem getum?

Standandi í sólinni,
Stolt af verki okkar,
Alltaf eins og stórt leyndarmál

Þú þú iðrast
Endalaust.

     *

Þú kemur og ferð
En innan marka

Bundin af lögum
Sem ekki eru þín.

Við eigum sameiginlega
Reynslu múrsins.

     *

Þannig
hrópaði Carnac.

Hvernig sungu
jötunsteinamennirnir.

Kannski voru þeir ekki
eins hræddir hér.

Miðja himins og hafs
og jarðarinnar líka,
það segir birtan.

Syngja skammt frá hafinu,
til að birtan samþykki þá.

Horfa út á hafið,
snúa við því baki,
ákalla jörðina.

     *

Án þín,
haf,

hefðu jötunsteinamennirnir
sennilega
ekkert gert í Carnac.


Nemendaskipti

MENNTASKÓLANS Í REYKJAVÍK &

EXTERNAT DES ENFANTS NANTAIS

Guillevic

Líf og störf

Guillevic fæddist í Carnac 5 ágúst 1907. Hann lærði ekki bretónsku heldur alsasmál og þýsku. Hann byrjaði seint að gefa út. Fyrsta bókin hans hét Terraqué, frá 1942. Næsta bók hans kom út 1947 og hét hún Exécutoire, tileinkuð Paul Éluard, besta vini hans.

    Gagner (1949)
    Carnac (1961)
    Sphère (1963)
    Avec (1966)
    Euclidiennes (1967)
    Ville (1969)
    Paroi (1970)
    Inclus (1973)
    Du domaine (1977)
Carnac © Lóa Bára Magnúsdóttir.