12 smárar

Af stæltum kletti
hrökk brimhagl
úr byssu stormsins


Á skerinu rotaði stormurinn
spriklandi ölduna

Lágfleygur bjargfugl
slapp naumlega
úr háfi brimsins

Eftir kylfuhögg stormsins
slægði ströndin
vaðandi öldurnar

Og brimið sveif hvítur sjófugl
um svartar borgir

Vágestur reyndist stormurinn
í dúnhreiðri öldunnar

Svart brim
seildist með vængjaþyt
eftir blárri ströndinni

Á þverhníptu bjargi brast
í hnúa brimsins

Blóðrisa engdust ölduhryggirnir
í klóm vindsins

Löðrið á svífandi stökki
um syllur bjargsins

Yfir óðfluga brimróti
dunaði
súgur skýjanna

Ég þeytti steinvölum gegn hafinu
og kolblá aldan brimaði hvítum laufum sem stormurinn feykti sem skýslitrum
yfir þaninn himininn

Nemendaskipti

MENNTASKÓLANS Í REYKJAVÍK &

EXTERNAT DES ENFANTS NANTAIS

Gunnar Harðarson

Gunnar Harðarson fæddist 15 ágúst 1954. Eftir að hafa hlotið doktorsnafnbót í heimspeki frá Sorbonne, hann kenndi við Háskóla Íslands, og árið 2000 við hinn nýstofnaða Listaháskóla Íslands. 1985 stofnaði Gunnar bókmenntatímaritið Teningur og var ritstjóri þess til ársins 2000. Á árunum 1980 til 2000 gaf hann út fimm ljóðasöfn, sem voru flest afar minimalísk, (sum jafnvel örfá bréfsnifsi í umslagi). Hann gaf út sína fyrstu bók árið 2000.

audio-video



Brim við strönd. © Álfdís Þorleifsdóttir.



Öldur í mánaskini © Jón Bjarni Kristjánsson.