-
Mánud. 7. apríl: Brottför
frá Keflavíkurflugvelli kl. 07:45. Nemendur koma sér
sjálfir í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lent
á Charles de Gaulle flugvelli í Roissy kl.13:05. Lest frá
Roissy-flugvelli kl.15:35 til Nantes kl.18:29 án viðkomu í
París. Tekið verður á móti okkur á
járnbrautastöðinni í Nantes og fer hver heim til
sinnar fjölskyldu.
-
Þriðjud. 8. apríl:
Allir koma með gistivinum sínum í skólann um
morguninn kl.8. Skólameistari tekur á móti okkur
og við fáum leiðsögn um skólann. Eftir fyrirlestur
um Nantes verðuður nemendum dreift í kennslustofur þar
sem þeir fá að fylgjast með einni kennslustund. Hádegismatur
í skólanum. Síðdegis verður farið í
skoðunarferð um Nantes.
-
Miðvikud. 9. apríl: Rútuferð:
Gamli bærinn í Vannes. Steinmannvirki í Locmariaquaire
(kl. 11:30) og Carnac (kl. 14:30) og strönd skoðuð og mynduð.
Franskir nemar verða með í ferðinni.
-
Fimmtud. 10. apríl: Safnaferð
í Nantes: Dobré-safnið og fornminjasafnið. Eftir
hádegi: Samstarfsfundur í skólanum.
-
Föstud. 11. apríl: Rútuferð:
Hallir við Loire-fljót: Brissac-höll skoðuð kl
10:30 Veggteppin í kastalanum í Angers (14:15) og safn Jean
Lurçat (kl.16:15).
-
Laugard.-sunnud. 12-13. apríl:
Helgin með fjölskyldunum.
-
Mánud. 14. apríl: Nantes: Listasafnið
(Ath tímasetningar), ef til vill safnarasýning í
Nantes
-
Þriðjud. 15. apríl:
Rútuferð til Saint Malo og Mont Saint-Michel.
-
Miðvikud. 16. apríl: Samstarfsfundur
og lokafrágangur verkefnisins um morguninn. Síðdegið
frjálst. Lokahóf.
-
Fimmtud. 17. apríl: Brottför
frá járnbrautarstöðinni í Nantes kl. 08:00.
Komið til Parísar á Montparnasse-stöðina kl.10:05.
Hótel: Victoria / 2 bis – 4 Cité Bergère /
75009 Paris / Sími (00 33) (0)1 47 70 20 01. Síðdegi:
Metróferð og göngutúr um París: Beaubourg,
Forum des Halles, Louvre, Tuileries, Place de la Concorde, Champs-Élysées.
Kvöldmatur á veitingahúsi.
-
Föstud. 18. apríl: Montmartre
með Sacré Cœur um morguninn. Louvre eftir hádegi.
-
Laugard. 19. apríl: Centre
Pompidou: Musée d’art moderne (Beaubourg), Mýrin (le
Marais), Musée Picasso.
-
Sunnud. 20. apríl: Musée
d’Orsay; Eiffel-turninn. Latínuhverfið. Cité-eyja
með Notre-Dame og dómhöllinni með la Sainte chapelle.
-
Mánud. 21. apríl: Brottför.
Charles de Gaulle flugvöllur í Roissy kl. 14:15.
Komið til Keflavíkur kl. 15:45.