Aðalnámsskrá

 

Samantekt  á markmiðum úr aðalnámskrá sem eru sameiginleg markmiðum verkefnanna.

 

Námskrá í stærðfræði
geta lesið úr einföldum töflum og súluritum og sett eigin gögn (t.d. niðurstöður athugana á umhverfi eða í sambandi við aðrar námsgreinar) upp í töflur og túlkað þau með skýringarmyndum og súluritum (áfangamarkmið 4.bekk)
geta rætt við kennara og aðra, t.d. heimilisfólk sitt, um stærðfræðileg efni í því skyni að öðlast betri skilning, til dæmis með því að spyrja kennara spurninga (áfangamarkmið 4.bekk)
geta nýtt sér stærðfræðileg hugtök og aðferðir við lausn verkefna í samvinnu við skólasystkin sín (áfangamarkmið 4.bekk)
geta útskýrt munnlega eigin lausnir á verkefnum og notað tákn og skýringarmyndir eftir því sem við á, þannig að þær verði skiljanlegar öðrum (áfangamarkmið 4.bekk)
geta útskýrt og sett fram eigin lausnir skriflega og samið sögur út frá stærðfræðilegum verkefnum, bæði sínum eigin og annarra (áfangamarkmið 4.bekk)
geta útskýrt og túlkað upplýsingar úr töflum og súluritum (áfangamarkmið 4.bekk)
geta beitt skipulegum aðferðum við lausnir verkefna og þrauta, nánar tiltekið
- spyrja spurninga og leita að tilgátum sem gætu skýrt verkefnið
- nota aðferðir eins og að setja dæmið á svið, nota áþreifanlega  
  hluti, giska á lausn, teikna myndir eða leysa einfaldara verkefni af
  skyldum toga 
- prófa niðurstöður
(áfangamarkmið 4.bekk)
hafa glímt við stærðfræðileg verkefni og þrautir af ýmsu tagi, nánar tiltekið
- geta túlkað einföld verkefni tengd daglegu lífi á stærðfræðilegan hátt
  sem auðveldar
  honum að leysa verkefnið
- hafa fengist við þrautir þar sem þarf að beita útreikningum
- hafa fengist við þrautir þar sem raða þarf saman hlutum eða
  flatarmyndum, t.d. gestaþrautir
- hafa búið til eigin þrautir, t.d. um viðfangsefni daglegs lífs
- geta unnið með öðrum að lausn þrauta, rætt mismunandi leiðir og
  skýrt lausnarferli sitt fyrir öðrum
- geta rökstutt niðurstöður sínar, túlkað og sannreynt
(áfangamarkmið 4.bekk)
geta beitt einföldum röksemdafærslum, nánar tiltekið
- geta rökstutt niðurstöður sínar og skýrt lausnarleiðir
- geta rökstutt reikningsaðferðir sínar
(áfangamarkmið 4.bekk)
gera sér grein fyrir því hvernig hægt er að nota stærðfræði í daglegu lífi og á öðrum sviðum, nánar tiltekið
- geta leyst verkefni daglegs lífs með aðferðum
stærðfræðinnar
- geta sett stærðfræðileg hugtök í samband við
  hversdagslega hluti til að gera þau skiljanlegri
- hafa kynnst notagildi stærðfræði í verslun og
  handverki og til að lýsa og skýra fyrirbæri í náttúrunni
  og daglegu lífi
(áfangamarkmið 4.bekk)
hafa kynnst hlutföllum milli stærða og geta notað þau
við lausnir einfaldra hagnýtra verkefna, nánar tiltekið
- geta notað hugtökin tvöfalt, þrefalt, fjórfalt ... og
  helmingur, þriðjungur, fjórðungur ... bæði í sambandi
  við tölur og aðrar stærðir, t.d. lengd strika
- geta metið hvort tiltekin stærð er stór eða lítill hluti
  af heild
(áfangamarkmið 4.bekk)
kunna ýmsar aðferðir til að flokka og setja fram töluleg
gögn, nánar tiltekið
- geta lesið úr gögnum og túlkað gögn sem sett eru
  fram í töflum eða með súluritum
- geta borið saman gögn með því að nota hugtök
  sem tákna fjölda eða magn
- geta safnað, skráð og flokkað gögn og sett fram
  niðurstöður í töflum og með súluritum
(áfangamarkmið 4.bekk)

 

Námskrá í upplýsinga og tæknimennt
Tölvunotkun í grunnskóla
hafa tileinkað sér jákvætt viðhorf til tölva og   þjálfast í að umgangast þær sem sjálfsagt verkfæri

(áfangamarkmið 4.bekk)

vera óhræddur við að þreifa sig áfram og auka við eigin þekkingu á tölvutækni

(áfangamarkmið 4.bekk)

þekkja helstu hluta tölvu og hafa tileinkað sér íslenskan orðaforða þar um

(áfangamarkmið 4.bekk)

hafa öðlast grundvallarfærni við að nota helstu ílags- og frálagstæki tölvu

(áfangamarkmið 4.bekk)

geta notað tölvu til að skrifa og prenta út eigin texta

(áfangamarkmið 4.bekk

hafa notað tölvu til að semja eigið efni

(áfangamarkmið 4.bekk)

hafa öðlast skilning á því hvernig tölvan vinnur með gögn sem merki í minni og á diski

(áfangamarkmið 4.bekk)

hafa öðlast skilning á því að tölvusamskipti felast í merkjaflutningi milli tölva um símalínur

(áfangamarkmið 4.bekk

Upplýsingamennt

hafa lært grunnatriði í meðferð og notkun tölvu

(áfangamarkmið 4.bekk)
kunna að vista skjöl og ná í vistuð skjöl (áfangamarkmið 4.bekk)
hafa vald á að prenta skjöl úr ýmsum forritum (áfangamarkmið 4.bekk)
geta búið til einfaldar heimasíður (áfangamarkmið 4.bekk) 

geta ritað einfaldan texta í ritvinnslu

(áfangamarkmið 4.bekk)
geta skeytt myndum inn í texta (áfangamarkmið 4.bekk)
kunna einfalda leit í upplýsingaveitum (margmiðlunardiskum og Interneti) (áfangamarkmið 4.bekk)

Nýsköpun og hagnýting þekkingar
hafa tekið þátt í samstarfsverkefni gegnum tölvunet  með nemendum í öðrum skólum og kynnst aðstæðum og vinnu annarra gegnum slíkt verkefni (áfangamarkmið 4.bekk)
hafa leitað að þekkingu utan skólans og bókasafnsins  í tengslum við verkefnið (dæmi: vefleiðangrar, tölvupóstsamskipti bekkjarins við sérfræðinga (dæmi: Jason-verkefnið), heimsóknir í atvinnufyrirtæki, skoðun á vefsíðum og tölvusamskipti) (áfangamarkmið 4. bekk)
hafa prófað að vinna í hóp að því að safna saman gögnum og notað tölvutól til að umbreyta þeim (t.d. safna saman gögnum í könnun og sýna myndrænt)        (áfangamarkmið 4.bekk)

 

Námskrá í íslensku
Íslenska
hafa fengið tækifæri til tölvusamskipta    (áfangamarkmið 4.bekk)
hafa notað tölvu sem verkfæri í ritun  (áfangamarkmið 4.bekk)
hafa notað veraldarvefinn og fengið aðstoð til að velja og vinna efni á Netinu (áfangamarkmið 4.bekk)

 

Námskrá í samfélagsgreinum
Samfélagsfræði
komi þekkingu sinni og skilningi á framfæri með fjölbreyttum hætti, í ræðu og riti, á myndrænan hátt og með leikrænni tjáningu, á tölvu og Neti, einn sér og í samstarfi við aðra (lokamarkmið 4.bekk)
þekkja mismunandi leiðir til að afla sér upplýsinga t.d. í bókum, dagblöðum, tölfræðigögnum, á kortum, Netinu, í ýmsum stofnunum, hjá fræðimönnum eða öðrum einstaklingum (áfangamarkmið 4.bekk)
hafa fengið tækifæri til að afla upplýsinga á mismunandi   hátt, t.d. með viðtölum og með því að nýta mismunandi heimildir, t.d. bækur, dagblöð og rafræna miðla (áfangamarkmið 4.bekk)
hafa kannað aðstæður og fyrirbæri á skipulegan hátt og skráð athuganir sínar, t.d. í vettvangsferð (áfangamarkmið 4.bekk)

 

 

Aðalsíða ] Upp ] Efnisyfirlit ] Verkefni ] Kennarar ] Um vefinn ] Bakgrunnur ]