Almennar leiðbeiningar
 

Mjög mikilvægt er að halda viðfangsefninu opnu allt frá upphafi og reyna eftir megni að leyfa vangaveltum nemenda að njóta sín.  Rangar ályktanir geta varðað leiðina að skynsamlegum niðurstöðum. 

Það sama gildir í raun um aðkomu kennara að viðfangsefnunum.  Þar sem þau setja nemendum ekki þröngar skorður varðandi úrvinnslu getur kennarinn, einn eða í samspili við samstarfskennara, sveigt þau og beygt að eigin hugmyndum.

Í upphafi hvers verkefnis er gjarnan varpað fram spurningum varðandi viðfangsefnið og er mjög gott að sú umræða fari fram í bekkjarstofu nemenda í spjallformi.  Niðurstöður umræðnanna eru jafn óðum skráðar til frekari úrvinnslu hvort sem um formlegar eða óformlegar niðurstöður er að ræða.  Þessar niðurstöður eru gjarnan ályktanir varðandi vinnuferlið og þurfa því að vera tiltækar í áframhaldandi vinnu í hópum.  Gott er að slíkar upplýsingar hangi uppi í bekkjarstofunni.

 

 

Aðalsíða ] Upp ] Efnisyfirlit ] Verkefni ] Kennarar ] Markmið ] Um vefinn ] Bakgrunnur ]