Brúarþraut

Brúarsmiðurinn sem fór að telja

Það var verið að laga gamla brú en hún var orðin svo illa farin að nú mátti aðeins fara gangandi eða hjólandi yfir hana.  Mikil umferð var um brúna því margir höfðu áhuga á að sjá þegar verið var að gera við hana. Halldór 2000
Umferðin um brúna var því gangandi fólk, fólk á hjólum, krakkar á þríhjólum og konur og menn með barnavagna. Þar sem brúarviðgerðarmennirnir unnu aðallega undir brúnni sáu þeir ekki annað en fætur þeirra sem fóru yfir og hjól farartækjanna.

Einn mannanna sem vann undir brúnni sá einu sinni 12 hjól á brúnni þegar hann leit upp og hugsaði þá. 
Hvaða farartæki skyldu vera á brúnni núna? Hann reyndi að finna alla möguleikana? 
Hverjir voru þeir?

 

Það sem þú gerir núna:
  • Reyndu að finna allar mögulegar lausnir við brúarþrautinni
  • Settu lausnina inn á Miðstöð og lýsingu á hvernig þú fannst hana
  • Skoðaðu lausnir samstarfsbekkjarins
  • Búðu til skemmtilega og mátulega þunga þraut fyrir samstarfsbekkinn og settu hana inn á Miðstöð
  • Reyndu að leysa þrautina eða þrautirnar sem samstarfsbekkurinn leggur fyrir þig.
 

 


Aðalsíða ] Upp ] Efnisyfirlit ] Kennarar ] Markmið ] Um vefinn ] Bakgrunnur ]