|
Með þessu verkefni
eru nemendur að vinna við:
- að
leysa þrautir sem geta haft
fleiri en eina lausn
- tjá
sig bæði munnlega og í
rituðu máli um lausnir sínar
- að
þjálfa rökhugsun sína
- tölvusamskipti
- að
búa til þrautir fyrir aðra
- myndvinnslu
Nemendur glíma
hér við eina sameiginlega þraut sem
hefur fleiri en eina lausn. Markmiðið er
að nemendur uppgötvi og skilji að með
skipulögðum vinnubrögðum og kannski
svolítilli þrautseigju er hægt að leysa
hana. Lausnarferlið er mikilvægt og jafnvel
mikilvægara en lausnin sjálf. Nemendur
kynnast því að röng svör geta einnig
verið lærdómsrík.
Í þessu verkefni
er lögð áhersla á að nemendur geti
tjáð sig um lausn sína bæði munnlega
og skriflega. Í aðalnámskrá í stærðfræði er
lögð mikil áhersla á þátt tungumálsins.
Þar segir m.a. á bls 7:
| "Lögð
er áhersla á
að hægt sé
að þjálfa
leikni í að
takast á við
viðfangsefni
þar sem lausnir
liggja ekki í
augum uppi. Sú
leikni er
samofin öðrum
þáttum. Leit
að lausnum
krefst bæði
hugkvæmni og
rökvísi og
færni í notkun
tungumálsins
eykur rökvísi.
Saman við
þessa þætti
fléttast
samvinna nemenda
og tjáskipti
þeirra á
milli.
Þjálfun
tungumálsins er
mikilvægur
þáttur í að
efla
stærðfræðilega
hugsun. Læsi á
texta og
myndræna
framsetningu,
nákvæm notkun
tungumáls og
táknmáls og
hæfni til
munnlegrar og
skriflegrar
tjáningar og
tjáskipta við
aðra stuðlar
allt að dýpri
skilningi á
stærðfræðilegum
hugtökum og
aðferðum."
|
Verkefnið felst einnig í því að búa til
þraut fyrir samstarfsbekkinn. Markmiðið með því er að fá nemendur
til sjálfstæðrar sköpunar og að leyfa hugmyndaflugi þeirra sem oft
er mjög ríkulegt á þessum tíma að njóta sín. Með því að myndskreyta
þrautina eru þau bæði að útskýra þrautina betur fyrir samstarfsbekknum
og um leið að móta og tjá hugsanir sínar á myndrænan hátt. Um
þetta er einnig fjallað í aðalnámskrá í stæðrfræði. Þar segir
m.a. á bls. 23.
| Við
lok náms í 4. bekk á nemandi að
-
hafa búið til eigin þrautir, t.d. um
viðfangsefni daglegs lífs
- geta unnið með öðrum að lausn þrauta,
rætt mismunandi
leiðir og
skýrt lausnarferli sitt fyrir öðrum
- geta rökstutt niðurstöður sínar, túlkað
og sannreynt |
|