Brúarþraut leiðbeiningar

Markmið verkefnisins sbr. aðalnámsskrá grunnskóla


Hugmynd að því hvernig vinna má með þrautina:
  • Allir nemendur bekkjarins setja lausnir sínar niður á blað og segja skriflega frá  hvernig þeir fóru að því að finna þær.
     
  • Æskilegt er að umræður fari fram um hvernig nemendur fundu lausnirnar og þeir komi sér saman um hvernig þeir vilji útskýra fyrir samstarfsbekknum hvernig þeir fundu allar hugsanlegar lausnir.

  • Síðan eru lausnirnar settar inn á Miðstöð með tilheyrandi skýringum.

  • Næsta skref er að nemendur útbúa  þrautir fyrir samstarfsbekkinn. Hægt er að láta nemendur skrá þrautirnar í Word og jafnvel myndskreyta. Þá er best að vista skjalið sem .html skjal og setja það síðan sem viðhengi inn á Miðstöð.  Hægt væri að láta nemendur hafa það sem heimavinnu að undirbúa þetta verkefni og virkja þannig einnig foreldra.
      
  • Þegar nemendur hafa sett sínar þrautir inn á Miðstöð þá er hægt að athuga hvort samstarfsbekkurinn er búinn að leggja sínar þrautir þangað inn þannig að hægt sé að vinna með þær.

  • Nemendur skiptast síðan á lausnum og ræða saman á Miðstöð um þær. Einn möguleiki við þá vinnu er að nemandi sem hefur samið þraut ræðir við þann í samstarfsbekknum sem leysir þrautina hans.
Búast má við að umræður skapist um hvað sé farartæki. Er til dæmis barnavagn farartæki? Áður en nemendur hefjast handa við að leysa þrautina þurfa þau að koma sér saman um hvaða farartæki séu möguleg við lausn hennar.

Þyngja  má þessa þraut með því t.d. að bæta við að láta nemendur finna út ekki bara hversu mörg farartæki voru að fara yfir brúna heldur líka fjölda fótgangandi vegfarenda.

 

Aðalsíða ] Upp ] Efnisyfirlit ] Verkefni ] Kennarar ] Markmið ] Um vefinn ] Bakgrunnur ]