Excel leiðbeiningar

                                       

      Einfalt myndrit í Excel  

 

Hér skal aðeins farið yfir hvernig hægt er að gera einfalt myndrit í Excel.

Við vinnum með nafnaverkefnið þar sem fundin eru algengustu nöfn í fjölskyldum bekkjarins. Segjum að niðurstöður úr bekknum hafi verið þessar fyrir 5 algengustu nöfnin:

 

Anna       kom fyrir 16 sinnum
Sigríður  kom fyrir 10 sinnum
Guðrún    kom fyrir  8 sinnum
Margrét  kom fyrir  6 sinnum
Sif          kom fyrir  5 sinnum

  

Fyrst þarf að búa til töflu yfir hversu oft hvert nafn kom fyrir. Það er gert þannig:

 

Farðu inn í Excel.  Excel opnar tóma vinnubók sem kallast Book 1.  Í  vinnubókinni  eru  vinnublöð (worksheets). Nöfn þeirra birtast á flipum neðst í vinnubókinni.     
Vistaðu skjalið með því að styðja á CTRL + s (eða fara í File og Save).  Nefndu þessa æfingu t.d. Nafnafj 

       Skráðu í töfluna eins og myndin sýnir 5 algengustu nöfnin.

 

Veldu nú reitina A1:B5 (ljómaðu þá reiti). Veldu síðan Insert - Chart


Þá færðu upp glugga líkan þessum:

 

 

Veldu nú  þá tegund súlurits sem þú vilt nota. Það gerirðu með því að tvísmella með músinni við þá tegund sem þú ætlar að velja eða ljóma þá tegund sem þú vilt velja og smella á Next >. Þá færðu myndritið og tilvísun í gögnin þín þ.e. svæðið sem þú valdir A1:B5.
 
Smelltu aftur á Next> hnappinn. Þá færðu upp þessa mynd:

 

 

Þarna er hægt að smella á flipana 6 efst til að komast í ýmsar stillingar. Það eina sem þú þarft að gera hér er að vera með Titles flipann opinn og skrá í Chart title þá fyrirsögn sem þú vilt að myndritið hafi. Þegar þú ert búin að skrá fyrirsögnina  birtist hún strax hægra megin í glugganum. Myndritið hefur líka tvo ása. Þú skráir viðeigandi heiti fyrir X- og Y-ásinn. Síðan smellir þú á Next >  
         
Þetta er síðasta þrepið og hér velur þú hvar þú vilt staðsetja myndritið það er hvort þú vilt láta setja það inn á töfluna eða láta það fylla heila skjámynd. Þegar þú hefur valið þá lýkurðu ferlinu með því að smella á Finish.    Vistaðu skjalið aftur í lokin .

 

          Svona lítur síðan myndritið út.

 
 

Aðalsíða ] Upp ] Efnisyfirlit ] Verkefni ] Kennarar ] Markmið ] Um vefinn ] Bakgrunnur ]