Þegar valin eru viðfangsefni á þennan vef
er margt sem hafa þarf í huga við verkefnaval og uppstillingu námsumhverfisins.
Hugmyndir okkar um hugtakið "nám"
eru ekki fullmótaðar. Þær byggja á nokkurri yfirlegu yfir
rannsóknum um hvernig mannshuganum er eðlilegast að nema m.t.t. ytri aðstæðna,
skynjunar og úrvinnslu. Hér er um að ræða hugmyndir um nám sem lúta
lögmálum hugsmíðihyggju. Hugsmíðihyggjusinnar leggja höfðuáherslu
á að skapa nemendum námsumhverfi sem hvetur og styður nemendur í virkri
uppbyggingu eigin þekkingar. Áherslan flyst frá kennslu yfir á nám
(námsleiðir) þar sem kennarinn er fremur í leiðbeinendahlutverki en
hlutverki fræðarans. (Hannafin, 1997).
Kjörorð hugsmíðihyggjunnar eru samvinna
(cooperation), samhengi (context) og sköpun (creativity).
Við val verkefna í þennan vef er því
reynt eftir megni að þau styðji við slíkar nálganir í námi.
Reynt er að hafa verkefnin opin þannig að þau bjóði sem mest upp á
leitarnám þar sem nemandinn er sjálfur við stjórnvölinn ásamt vinnufélögum
sínum.
|
|