|
Ráðstefnukerfið
sem notað er í verkefninu köllum við Miðstöð.
Enska heitið á því er Webboard. Miðstöð er sá staður sem öll umræða
um verkefnin fer fram og þar getur þú skoðað það sem er í gangi hverju
sinni og séð afraksturinn. Á Miðstöðina setur þú inn ósk um að taka þátt í ákveðnu verkefni. Þú getur einnig séð hverjir hafa
skráð sig og í hvaða verkefnum þeir ætla að taka þátt.
Á kennarastofunni í Miðstöðinni er hægt að spjalla saman um verkefnin á meðan þau standa
yfir og senda inn spurningar og segja frá framvindu mála, skila inn gögnum
til annarra og að lokum senda þangað niðurstöður sem html
skjal þar sem aðrir
geta séð afraksturinn. Nemendur nota einnig
Miðstöðina til að spjalla saman og taka á móti og koma frá sér
upplýsingum í sambandi við verkefnavinnuna. Það gera þeir á ráðstefnum
undir viðkomandi verkefni.
|