Nafnaverkefni leiðbeiningar

  Markmið verkefnisins sbr. aðalnámsskrá


Nemendum kynnt verkefnið og hvaða bekkur ætlar að taka þátt í verkefninu með þeim. Þeir fá að fara inn á Miðstöðina og kynna sig og lesa það sem hinir eru búnir að setja inn.

Nemendur hafa sem heimaverkefni að koma með 20 nöfn. Hvert nafn er skrifað á lítinn miða . Nöfnin eiga að vera úr fjölskyldu nemanda.
Nöfnin eru tekin saman  og fundið er út hvað hvert nafn kemur oft fyrir. Þetta er auðvelt þegar spjöldunum er raðað t.d. í stafrófsröð.

Kennari varpar fram spurningum  og nemendur koma með tillögur:

  • Ætli þessar niðurstöður bekkjarins segi okkur eitthvað um algengustu nöfn á Íslandi?
  • Ætli eitthvert nafn sé algengara í einum landshluta en öðrum?
  • Hvað ætli þurfi að  spyrja marga Íslendinga til að fá vitneskju um algengasta nafn á Íslandi ?
  • Ætli algengasta nafn á Íslandi í dag hafi líka verið algengast  fyrir 10 árum, 40 árum?
  • Hvaða niðurstöður ætli samstarfsbekkurinn fái?
  • Hvar ætli við getum fengið upplýsingar um algengasta nafn á Íslandi? (T.d. Hagstofa Íslands)
  • Ætli algengasta nafnið á Íslandi sé til í öðrum löndum? Er það stafsett eins?
  • Eru margir sem heita aðeins einu nafni?


Nemendur búa til  myndrit (súlurit) í Excel yfir hversu oft 5-10 algengustu nöfn í fjölskyldu bekkjarins komu fyrir.  Sjá kennslusíðu um myndrit. 
Nemendur geyma myndritið  sem html-skjal og setja tengingu út á Miðstöð eða myndritið er sett út á heimasíðu.
Nemendur skoða niðurstöður samstarfsbekkjarins og unnið er út frá ofangreinum spurningum ásamt fleiri spurningum sem kunna að vakna við umræður og vinnu verkefnisins.



Aðalsíða ] Upp ] Efnisyfirlit ] Verkefni ] Kennarar ] Markmið ] Um vefinn ] Bakgrunnur ]