Talnasarpur

 

  • Hefur þú einhvern tíma velt því fyrir þér til hvers tölur eru? Gætum við kannski lifað án þeirra?  Hvar eru þær notaðar?  Er hægt að nota allar tölur alls staðar, bæði háar og lágar?  Við skulum athuga málið.
  • Nú átt þú ásamt bekkjarfélögum þínum að safna tölum í heila viku og útbúa stóran TALNASARP.  Þú skrifar niður á 10 miða hvar tölur eru notaðar og til hvers er verið að nota þær eða hvað þær eiga að tákna. Eitt tilvik á hvern miða.  Miðunum er safnað alla vikuna á einn stað í TALNASARP bekkjarins.  Síðan vinna allir saman að því að rannsaka innihald sarpsins nánar.
  • Þá er komið að því að flokka innihald sarpsins.  Þið vinnið saman í hópum og kennarinn skiptir miðum úr talnasarpinum á hvern hóp.  Hver hópur reynir að flokka miðana eftir því hvernig verið er að nota tölurnar.  Þið þurfið að lesa hvern miða og reyna að sjá út hvar er verið að nota tölurnar t.d. til að raða, mæla, tákna fjölda einhvers o.s.frv.  Búið til "nafn" á hvern flokk eða útskýringu á af hverju þið flokkið eins og þið gerið.  Reynið að nota "nöfn" sem lýsa því hvernig tölurnar eru notaðar.
  • Þegar búið er að flokka gögnin er komið að því að segja hinum hópunum í bekknum frá því hvernig þið flokkuðuð og þarf að undirbúa það vel. Það sem þarf að koma skýrt fram í kynningunni eru nöfn flokkanna og af hverju þið flokkuðuð svona eins og þið gerðuð.
  • Nú þurfa hóparnir að koma sér saman um flokkun á  miðunum.   Síðan sendið þið þessa flokkun inn á Miðstöðina inn á hólfið Talnasarpurinn, merkt "Flokkun frá (nafn á bekknum)".
  • Nú skuluð þið athuga hvernig krakkarnir í samstarfsbekknum hafa flokkað.  Er sú flokkun frábrugðin ykkar flokkun?  Hvernig?  Ræðið málin í bekknum og sendið fyrirspurnir inn á Talnasarpshólfið á Miðstöðinni ef þið þurfið.
    Að lokum útbýr hver hópur „TALNA-ÖRSÖGU" sem kennarinn segir nánar frá.  Þessa sögu á svo að senda inn á Miðstöðina og samstarfsbekkurinn sendir lausn til baka.  Þið glímið síðan við sögur samstarfsbekkjarins og sendið svörin um hæl.
 

Aðalsíða ] Upp ] Efnisyfirlit ] Kennarar ] Markmið ] Um vefinn ] Bakgrunnur ]