|
Hugtakið "þrautalausnir" er í þessum vef notað um viðfangsefni
sem krefjast ákveðinna leiða í námi. Á það bæði við um innihald
viðfangsefnanna og þær vinnuaðferðir sem notaðar eru við að glíma við þau.
ÞRAUTALAUSNIR- þýðir að verkefnin verða að bjóða upp á ákveðna
eiginleika sem reyna á nemendur í vinnuferlinu. Sem dæmi um slíkt
getur þessi upptalning hjálpað við val á viðfangsefnum.
- Þrautir sem sækja viðfangsefni sitt í aðrar námsgreinar, daglegt líf
nemenda eða annað umvherfi.
- Þrautir sem reyna á ýmsa þætti innan stærðfræðinnar:
úr mismunandi talnamengjum, með breytilegum fjölda, þyngd, rúmfangi, hitastigi, lengd, verði, hraða,
tíma og mismunandi einingatáknun g., kg., liter, m., kr., og ár
- Þrautir þar sem nemendur beita vasareikni, hugarreikningi, formúlum og
jöfnureikningi.
- Þrautir sem bjóða upp á mismunandi
framsetningar þegar kemur að
birtingu lausna, þ.e. með teikningum, "fígúrum", töflum og gröfum.
- Þrautir sem bjóða upp á fjölbreyttar leiðir (aðferðir) við úrlausnir.
- Þrautir sem birtar eru á mismunandi hátt, þ.e. með mismunandi orðalagi,
mislöngum texta, munnlega, með og án mynda, textum sem innihalda mikið
af upplýsingum og þrautir þar sem vantar upplýsingar.
- Þrautir sem bjóða upp á fleiri en eina niðurstöðu eða þar sem
ekki er
hægt að komast að niðurstöðu.
- Þrautir sem taka mislangan tíma í vinnslu. (Lausleg þýðing úr bókinni
"Matematik ett kommunikationsämne" sem gefin var út af Nämnaren
í Gautaborgarháskóla 1996).
|