Kona í krapinu - dagbók
31.12.06
      ( 6:13 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  



#




29.12.06
      ( 6:28 AM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Ég er í vinnunni, gæti gert alveg helling en er löt. Nenni samt ekki að vera heima því þar bíður mín þvottur og heimilisstörf í lange baner. Þyrfti líka að fara í búð, ó skyldur mínar eru óyfirstíganlegar. Væri ekki gaman að þurfa ekki að gera neitt heimilistengt endrum og sinnum?

Ég vann aðeins í gær, var með eina Strong túlkun og svo dreif ég mig í bíó í gærkveldi. Sú sem ég bauð með mér hafði aldrei farið í bíó hérlendis svo þetta var talsverð upplifun fyrir hana, en ekkert síður mig (því ég fer svo sjaldan í bíó). Þökk sé Gurrí sem laumaði miðunum innan í Hús Júlíu í afmælisgjöfinni minni…..

Jólaveisla stórfjölskyldunnar er á morgun, áður þarf ég að fara í naglaviðgerð (já ég er svaka skvísa) og svo tók ég að mér að gera Waldorf salat. Það verður mega gaman að hitta ættingjana, enda svo skemmtilegt fólk og ekki síður fallegt.

Hlakka samt líka til þegar þessi hátíðahöld verða búin og hversdagsleikinn tekur við. Það er eitthvað svo notalegt að mæta í vinnuna og sinna þessu daglega amstri. Vorönnin verður býsna ásetin hjá mér, skýrist allt í námsvísinum sem fer í dreifingu 4. janúar. Svo er ég að melta það hvort ég eigi að taka eins og einn kúrs í HÍ, sé nú ekki að ég hafi tíma, en ég er nú einu sinni búin að borga skólagjöldi og allt… auk þess sem væri nú gott að ljúka stundum einhverju sem maður byrjar á…
#




27.12.06
      ( 12:54 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  

Alþjóðlega jólaveislan að baki, ég hef ekki skemmt mér svona vel lengi, eða síðan í afmælinu mínu. Otilija var potturinn og pannan í allri skipulagninu og stóð sig með snilld. Byrjað var með því að allir höfðu smá kynningu eða sögðu frá sínu heimalandi. Við slepptum Íslandi en vorum svo heppin að fá söng í staðinn. Þegar við vorum búin að borða var farið í leiki og svo bara dansað fram á nótt. Ætlast var til að fólk mætti í grímubúningum og ég var hermaður. Á myndinni má sjá frá vinstri konu frá Lettlandi sem ég man alls ekki í augnablikinu hvað heitir, fyrir aftan mig er Darius eiginmaður Otiliju og svo Artis (eiginmaður konunnar). Ég hef kennt báðum þessum mönnum íslensku. Auðvitað skrifaði ég svo grein um þennan viðburð og setti í Moggann ; ) sem birtist í dag.
Í dag þrifum við salinn, ég fór aðeins að vinna, fór út að hlaupa og hef aðeins gripið í heimilisstörf á milli þess sem ég er að lesa eða tölvast. Ég hef samt lesið óvenju lítið þessi jól, bæði hefur ekki verið mikill tími til að slappa af og svo er ég bara syfjuð ef ég sest niður.
#




25.12.06
      ( 3:39 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  


Svona á ég nú ofboðslega falleg börn (þó þau séu öll í föðurættina), þau virðast hafa fengið einhvern þokka frá mér : )

Myndin er tekinn skömmu fyrir matinn á aðfangadagskvöld. Jólin voru alveg eins og venjulega, allt á síðasta snúningi en heppnaðist þó. Allir urðu saddir og fengu góðar gjafir.

Í dag komu pabbi og mamma og tengdapabbi í heitt hangilæri. Við ætlum hjónin að horfa á minningar Geisju ef börnin skyldu sofna bráðum.
Sendi síðbúnar jólakveðjur til ykkar !

Labels:

#




23.12.06
      ( 1:59 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  

Krzysztof er bara nokkuð glaður, þótt hann hafi þurft að vera inn á baðherbergi undanfarna daga. Nú eru þeir búnir feðgarnir, og geta andað léttar, lausir við klósettáhyggjurnar.
Samt er klósettið ekki tilbúið þótt klósettkassinn sé afar flott flísalagður. Smá píparamál, veit ekki hvort ég get vígt það fyrir jól, en mér slétt sama.
Mér leið undarlega þegar ég settist til borðs í kvöld því ég var ein í mat þ.e. í skötunni. Hinir fjölskyldumeðlimir voru fjarverandi og bissí nema Elís Dofri sem sagðist ekki borða svona ógeð. Reyndar er Gylfi nýlega búinn að viðurkenna að honum finnist skatan ekkert sérstaklega góð, og muni ekki sakna hennar þótt hún yrði ekki framar á borðu- mér finnst nú lásí að vera opinbera þetta eftir 21 ár. Ég hins vegar vil fá skötu, úr því ég er að hanga á þessu landi. Skötulyktin er jólailmurinn minn ; ) mun betri en hangikjötslyktin.

#




22.12.06
      ( 3:51 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Þá er ég komin í jólafrí, fínt bara, þótt mér finnist nú sumarfrí miklu skemmtilegri. Ég vann til rúmlega hádegis í dag, en við Símenntunargellur borðuðum saman á Landnámssetrinu í hádeginu. Ég er búin að vera úti að borða flest hádegi undanfarna daga, í gær með Ingu. En ég fór sum sé heim í dag og skreið bara upp í til Nökkva, sem var ekki kominn á fætur (kl. 14:00). Það varð til þess að hann dreif sig á lappir ; )

Annars hef ég haft Pólverjana mína tvo hjá mér undanfarna daga, þeir eru að flísaleggja klósettkassa fyrir mig, og koma aftur á morgun. Vandvirkir og ekkert að flýta sér, en það er allt í góðu. Ég myndi bjóða þeim að vera yfir jólin ef börnin væru jákvæðari : -) ég minntist á það um daginn en einkadóttirin brast í grát og sagði ,,þú lætur ekki einhverja Pólverja eyðileggja jólin fyrir okkur" og einn sonurinn sagði ,,mamma, þú ert gjörsamlega búin að tapa þér í þessum útlendingum" , restin af fjölskyldunni glotti, en einhverjir voru ekki viðstaddir.

Ég man ekki hvort ég var búin að segja frá því en ég fer til Danmerkur 16. júní og á ekki pantað aftur heim fyrr en 4. ágúst. Hef hugsað mér að vera í Póllandi og Litháen í sumar, jafnvel Ungverjalandi ef Ása mín verður eitthvað þar, hún er þar núna og verður yfir jólin. Að sjálfsögðu hef ég yngri börnin með mér og þau hlakka mikið til. ED æfir sig í pólsku, en hann er svo heppinn að eiga pólska vini sem eru með honum á leikskólanum.

Við Otilija eyddum síðdeginu í innkaup fyrir jólaboðið okkar. Við vorum styrktar af SPM og KBbanka og nokkur fyrirtæki gefa mat og gjafir. Við erum svo sem ekkert bjartsýnar með fjöldann en vonumst eftir 30 - 50 manns.
#




20.12.06
      ( 1:28 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Ágætur dagur, þannig séð. Byrjaði reyndar á því að þurfa að velja ,,betri" klæðnað vegna jólamatarins í skólanum, og að taka bensín í rokinu og rigningunni. Lét eftir mér að fá þjónustu, til að þurfa ekki að fara út úr bílnum. Fékk smá samviskubit af því ég hefði alveg getað dælt sjálf á bílinn, og vorkenndi bensínafgreiðslumanninum, þannig að ég tók bara fyrir þúsund kall.

Ég viðurkenni að ég nennti ekki á jólaskemmtunina í skólanum, sendi bara SS sms og sagðist samt elska hana. Ég bara þoli ekki svona hátíðir. Svo einkennilega vildi til að Gylfi fór þannig að málið reddaðist. Hann er m.ö.o. farinn að standa sig betur en ég. Hins vegar fór ég svo í jólahangikjötið í skólanum, það er nánast ómissandi þáttur i jólastandinu. Þá borðar starfsfólk grunnskólans saman og á góða stund.

Eftir hádegi var það svo vinnan og svo ,,stelpukvöld" í Safnahúsinu. Ég bauð Otiliju með mér, en við erum annars á fullu í að undirbúa jólaboðið sem verður á 2. jólum, fyrir útlendingana sem hér eru yfir jólahátíðina. Það verður skemmtilegt ; )
#




19.12.06
      ( 3:06 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Ég berst við að láta ekki jólablúsinn ná tökum á mér... reyni að einbeita mér að vinnunni og einhverju skemmtilegu.....
#




18.12.06
      ( 11:13 AM ) Guðrún Vala Elísdóttir  

Ég bjó til Bigos í kvöldmatinn, af ákveðnu tilefni, en krökkunum fannst það ekki mjög gott. Þetta er pólskur réttur sem samanstendur aðallega af káli, súrkáli og einstaka kjöttuttlu.

Uppskriftina fékk ég hjá fyrrum nemanda úr Landnemaskólanum.

#




16.12.06
      ( 2:36 AM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Við Ása skelltum inn grein í Skessuhorn sem má lesa hér og svo er líka mjög góð grein eftir Önnu Láru Steindal.

Ég var í bænum í gær á 25 ára afmælishátíð náms- og starfsráðgjafa, fór síðan til pabba og mömmu. Ég hafði hugsað mér að versla einhverjar jólagjafir í Smáralindinni, en eftir klukkustund þar nennti ég ekki meiru og fékk mér bara kaffi og slappaði af. Skrýtið að þegar maður virkilega þarf að versla er það drepleiðinlegt, en inn á milli þegar maður er ekkert í innkaupahugleiðingum getur verslunarviljinn orðið býsna einbeittur. Vonandi tekst mér bara að senda Gylfa í þessi erindi.
#




15.12.06
      ( 4:24 AM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Það er ekki amalegt að geta skellt sér inn í kirkju í jólastressinu (ef ég hefði svoleiðis) og bloggað. Ég er stödd í Neskirkju, en hér er heitur reitur og ágætis kaffitorg. Ég kem hingað stundum og líður alltaf jafnvel. Á eftir er ég að fara á afmælishátið náms-og starfsráðgjafa!

Á leiðinni í bæinn las ég á vegskiltið við mótel Venus LOG IN Kjalarnes. Mér varð spurn, en skynsemin sagði mér strax að þarna hlyti að hafa staðið LOGN Kjalarnes. Vegir hugans eru órannsakanlegir eða er ég kannsi orðin alveg útúrtölvurugluð?

Við útskrifuðum hópinn okkar úr landnemaskólanum í gærkveldi. Það var góður hópur sem ég á eftir að sakna. Þau eru frá Egyptalandi, Thailandi, Filipseyjum, Póllandi og Bosníu-Hersegóvínu. Við enduðum á kaffi, allir lögðu á borð með sér eitthvað gott, það er nú ekki eins og maður sé eitthvað að horast niður.... bara kurteisi að smakka allt... ég fékk tælensk silkiblóm frá nemanda mínum, hún gerði þau sjálf, og svo mætti Magda mín með pólskt sjal handa mér... ég er alltaf að fá eitthvað fallegt. Takk allir sem eru alltaf að gleðja mig.
#




13.12.06
      ( 5:26 AM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Þrettándi desember og ég er heima í dag. Vaknaði með hausverk, svima og flökurleika, og eftir að vera búin að fara í sturtu án þess að líða neitt betur skreið ég aftur upp í rúm. Ætla að halda mig hér i dag.

Ég var í Ólafsvík í gær í síðasta skiptið, og kom frekar seint heim. Þvílík fljúgandi hálka, ógeðslega hættulegt. Ég sá rútu utanvegar áMýrunum, en hún hafði farið fyrr um kvöldið svo það var ekki beint eins og ég væri að koma að slysstað. Enda held ég að enginn hafi slasast sem betur fer. Þegar ég kom heim fór ég beint að sofa, börnin eru svo þæg núna útaf jólasveinunum sem gefa skóinn. SS skrifar þeim alltaf ansi skemmtileg bréf sem ég ætla að vona að sveinarnir geymi og afhendi henni þegar hún verður stór.

Jólaundirbúningur er ekki hafinn á þessu heimili, enda jólin ekkert alveg á næsta leyti.
#




10.12.06
      ( 2:16 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  






















Svona leit ísskápurinn snyrtilega út eftir að heimasætan var búin að þrífa hann. Hún hefur sérhæft sig í þrifum á ísskápum, og gerir það mjög vel. Ég þoli svona þrif frekar illa, fæ harðsperrur eftir á.

Lífið leikur við mig, nóg að gera og alltaf jafn gaman. Á föstudagskvöldið kíkti ég í örstutta heimsókn til Litháísku vina minna en næstum allan laugardaginn var ég í Íþróttahúsinu með börnin á fótboltamóti fyrir utan klukkustund sem ég fór sjálf í þrek. Já ég verð að nota þetta árskort. Í gærkveldi heimsótti ég Rauða krossinn á Akranesi, en þar fór fram alþjóðlegt matarboð ; ) keyrði svo heim í brjáluðu veðri, fauk 3x yfir á öfugan vegarhelming, en komst á endanum heim nokkuð tekin á taugum.

Í dag voru það svo Moggaskriftir og ,,opna húsið". Nú erum við að undirbúa jólapartý fyrir útlendingana sem hanga hérna um jólin, að drepast úr leiðindum....

Labels:

#




8.12.06
      ( 2:22 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Ég hef trúlega ekki enn komið því að hversu mikið orðspor fer af drasli heimilisins. Til að mynda fékk ég fábæra bók í afmælisgjöf sem heitir "Burt með draslið" og lofar góðu. Hitt er svo enn betra að fljótlega eftir að heimilishjálpin hætti birtist önnur sem bauðst til að taka við. Ég var ekki lengi að þiggja það og þessi er jafnvel betri en sú fyrri. Hins vegar verður að segjast að það er einn galli á þessu nefnilega að þegar búið er að þrífa og laga til finn ég ekkert.
#




5.12.06
      ( 4:12 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Það er ekki eins og veisluhöld séu búin, nei í kvöld var jólafundur Keðjunnar á Hótel Hamri. Og þetta var sko "my lucky night" því ég náði í þennan líka bráðmyndarlega unga og hæfileikaríka Pólverja til að hafa með mér á fundinn, fékk blómvönd frá Keðjukonunum og vann svo möndlugjöfina. Alveg þreföld heppni í kvöld. Pólverjann sótti ég upp í Loftorku, en hafði fengið ábendingu,svo talað við hann sjálf og mælt mér mót við hann. Hann var mjög hugrakkur að þora að fara með kerlingu á fimmtugsaldri í bíltúr (sem hann hafði aldrei hitt áður) og án þess að vita nokkuð um framhaldið - annað en ég hafði óskað eftir tónlistarflutningi. Mikið varð hann glaður að fá að spila og syngja fyrir 20 konur - á öllum aldri - ha ha!!
#




4.12.06
      ( 4:03 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
#


      ( 9:40 AM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Ég var aðeins að plata í síðustu færslu með að ég hefði verið allan daginn að opna pakkana. Bara til að gera ykkur forvitin ; )

Reyndar var ég að ganga frá mest allan daginn i gær, vaska upp (sem var bara gaman af því ég geri það svo sjaldan) og svoleiðis. Þurrka upp rauðvínsslettur og tína upp glerbrot - já það var fjör í afmælinu! Þurfti svo að sækja börnin suður, en þau fóru í bingó hjá Breiðfirðingafélaginu. Þannig að ég opnaði ekkert fyrr en seint í gærkveldi.

Ég skreytti salinn á laugardaginn, þemað var appelsínugult, skreytingar voru einfaldar en smekklegar (montið í mér) ljósaseríur, kertaljós og rósir. Cora sá alveg um matinn en hann var filipískur og rosalega góður. Gylfi hafði heimtað að vera veislustjóri, og tókst það með ágætum. Gat meira segja haft smá hemil á mér þegar ég var farin að röfla ; )

Nokkrir tróðu upp með ræður, skemmtiatriði og söng, og var ég afar ánægð með kvöldið - sem reyndar hélt nú áfram fram á nótt.... Gestirnir voru nálægt hundrað, þar af nokkrir Pólverjar, Ungverjar, Litháar og Þjóðverjar. Og svo Íslendingar af ýmsum toga. Niðurstaðan: frábært afmæli (fannst mér).

Gjafirnar voru ekki slæmar; og sumar býsna frumlegar. T.d. fékk ég tíma hjá spákonu, bíómiða, bók um tiltekt, vindil (einu sinni þótti það nú dónó, enda var gjöfin nafnlaus) fimm aðrar bækur, nokkrar vín og líkjörsflöskur, ilmvötn og snyrtivörur, ungverskan dúk, kærleiksljós, jólaskreytingar, jólaóróa, geisladiska, pólska jólakúlu, blóm, skartgripi, kerti í massavís og æðislega kertastjaka, styttur, konfekt, heimagerðan lampa, og já gjafabréf í Kringlunni, í Gallerí List og svo peninga. Ég er kannski að gleyma einhverju, enda erum við ekki að tala um neitt smáræði !

Ekki voru teknar margar myndir í afmælinu - handvömm- en þær 4 sem voru teknar á mína vél eru þar enn, eða þar til ég finn myndavélasnúruna...
#




3.12.06
      ( 4:27 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Það stendur auðvitað til að blogga um afmælisveisluna og allt, en ég hef bara ekki haft tíma, því ég er búin að vera opna pakkana í allan dag. Meira á morgun.
#





Guðrún Vala Elísdóttir



að lesa
Ugla
Myndir til sölu
Dagbók 26
Vefsíðan mín
Gestabók
Dagatal
Afi
Alfons
Anna
Anna K
Ása
Ásdís
Ásta
Beggi
Birna
Daníel
Dúna
Emilía Lilja
Erlingur
Fjóla
Guðrún Björk
Guðrún Helga
Gulla
Gurrí
Halli Reynis
Harpa
Harpa frænka
Heiða
Hildigunnur
Hrund
Íris
Judy Lay
Júlía
Kata
Karitas
Lorya
Magga
Magnþóra
Metamorphoses
Nanna
Oddrun
Ragna frænka
Gylfi
Sölvi
Nökkvi
Salvör Svava
Elís Dofri
Borgarbyggðarlistinn
Sjálfstyrkingarnámskeið
borgarsig.is
eldra efni:



Site Meter Weblog Commenting by HaloScan.com Powered by Blogger