Kona í krapinu - dagbók
19.3.07
      ( 4:29 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Ég gat ekki lokið við helgarfrásögnina í gær, af því að blogger vill ekki langa texta. En sum sé á laugardeginum reif Gylfi sig upp og fór í skólann (eitthvað er hann að læra) en ég lúrði nánast til ellefu, en þá fór ég með Kaupþingsskvísum í Laugar -spa, þar sem við lágum í bleyti og slöppuðum af í tvo klukkutíma. Algjörlega stórkostlegt fannst mér......

Eftir að hafa slappað af, fór ég heim á hótel og slappaði meira af. Svo tók nú tímann sinn að hafa sig til, en aldurinn er vissulega farinn að segja til sín í þeim efnum. Svei mér þá alla daga.
Árshátíð Kaupþings var sú besta hingað til, bæði hvað varðar mat og skemmtiatriði. Hreiðar var búinn að lofa okkur þessu, en við hittum hann þarna í Laugunum. Olsen bræður voru náttúrulega aðalnúmerið en þemað var Júróvísjón. Eins og í fyrra vorum við nú ekkert lengi á tjúttinu. Mér gengur ekki vel að dansa í pallíettukjól og pinnahælum....

Af hótel Sögu fer ekki gott orðspor um þetta leyti. Þar átti sér stað nauðgun um helgina og erlendar vændiskonur hafa haft þar greiðasölu. Án þess að kveikja nokkurn tímann á sjónvarpinu gat ég ekki betur séð en að ennþá væru boði klámrásir. Seinni nóttina sem ég gisti hvein svo mikið í húsinu (vindur) að ég gat ekki sofið. Ég var eiginlega bara fegin að fara heim á sunnudeginum og kom við í Skrúðgarðinum á Akranesi, sem sést á blogginu hennar Gurríar. Árans myndavélar alltaf.
#





Guðrún Vala Elísdóttir



að lesa
Ugla
Myndir til sölu
Dagbók 26
Vefsíðan mín
Gestabók
Dagatal
Afi
Alfons
Anna
Anna K
Ása
Ásdís
Ásta
Beggi
Birna
Daníel
Dúna
Emilía Lilja
Erlingur
Fjóla
Guðrún Björk
Guðrún Helga
Gulla
Gurrí
Halli Reynis
Harpa
Harpa frænka
Heiða
Hildigunnur
Hrund
Íris
Judy Lay
Júlía
Kata
Karitas
Lorya
Magga
Magnþóra
Metamorphoses
Nanna
Oddrun
Ragna frænka
Gylfi
Sölvi
Nökkvi
Salvör Svava
Elís Dofri
Borgarbyggðarlistinn
Sjálfstyrkingarnámskeið
borgarsig.is
eldra efni:



Site Meter Weblog Commenting by HaloScan.com Powered by Blogger