| Kona í krapinu - dagbók | |
|
6.4.07 ( 1:34 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir Eigandi þessa bloggs ákvað að eiga langan dag og fór á fætur talsvert fyrir hádegi. Til þess auðvitað að læra, en mjótt er á munum þess hvort mér tekst að ljúka áfanganum sem ég er í, eða hvort ég neyðist til að gefa skít í hann. Ég er alla vega ekki á þeim buxunum að gefast upp fyrr en öll von er úti. Ég lærði til kl. sex, fór þá mína 5 km. Af því við vorum með matarboð í gærkveldi voru nægir afgangar og ég þurfti ekki annað en að hita upp herlegheitin. Auðvitað var ég með filippískan mat sem heppnaðist mjög vel. Ég er eiginlega hætt að nenna að elda íslenskan mat. Við förum í fermingarveislu á morgun, og svo tekur lesturinn við á nýjan leik. En frúin á heimilinu er búin að kaupa sér miða á tónleikana með Björk og svo er ég búin að redda mér Pólverjum sem fylgdarsveinum. Segiði svo að þeir séu ekki ómissandi þessar elskur. # |
|