Kona í krapinu - dagbók
3.4.07
      ( 5:34 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir  
Eitt af því sem ég get alls ekki skilið er hvers vegna blogger uppfærir ekki eldra efni. Þar sem ég hef bloggað í 5 ár fannst mér líklegasta skýringin sú að ,,eldra efni" næði ekki yfir lengra tímabil en 5 ár svo ég ætlaði að eyða árinu 2002 út, en sökum kunnáttuleysis tókst það ekki. Klaufinn ég. Þá velti ég því fyrir mér hvort ég eigi að gefa skít í blogger og fara á moggabloggið af því að það er svo trendí nútildags, en ég hef löngum verið treg í taumi og átt erfitt með að fylgja straumnum... en hver veit hvað gerist á endanum. Maður er kannksi ekki eins spes og maður heldur.

Einkadóttirin tók þátt í danssýningu i dag, en hún hefur verið að æfa dans á vegum Símenntunar í litla "Demantinum". Þjálfari er hin frábæra Otilija frá Litháen sem hefur náð mega árangri með stúlkurnar. Af ástæðum sem Mr. Blogger einum er kunnugt um get ég ekki sett mynd inn á.

í dag fór ég í heimsókn og sá fallegustu börn í Borgarnesi (fyrir utan mín) þau eru frændsystkin, annað bæði íslenskt og filippeyskt, hitt filippeyskt.... alveg yndisleg og ég þakka fyrir að Íslandi skuli hafa auðnast sú gæfa að útlendingar setjist hér að.

Ég man hvað mér fannst leiðinlegt þegar ég var að alast upp að ég skyldi ekki þekkja neinn útlending og aldrei sjá neinn sem leit öðruvísi út en við Íslendingar. Á sumrin hitti maður Kana, en ég segi nánar frá því síðar.... en hvað ég vildi sagt hafa er að mér líður mun betur á Íslandi eftir að mannlífsflóran varð fjölbreyttari og litríkari. Ísland fyrir alla, konur og kalla, krakka með hár og kalla með skalla : )
#





Guðrún Vala Elísdóttir



að lesa
Ugla
Myndir til sölu
Dagbók 26
Vefsíðan mín
Gestabók
Dagatal
Afi
Alfons
Anna
Anna K
Ása
Ásdís
Ásta
Beggi
Birna
Daníel
Dúna
Emilía Lilja
Erlingur
Fjóla
Guðrún Björk
Guðrún Helga
Gulla
Gurrí
Halli Reynis
Harpa
Harpa frænka
Heiða
Hildigunnur
Hrund
Íris
Judy Lay
Júlía
Kata
Karitas
Lorya
Magga
Magnþóra
Metamorphoses
Nanna
Oddrun
Ragna frænka
Gylfi
Sölvi
Nökkvi
Salvör Svava
Elís Dofri
Borgarbyggðarlistinn
Sjálfstyrkingarnámskeið
borgarsig.is
eldra efni:



Site Meter Weblog Commenting by HaloScan.com Powered by Blogger