| Kona í krapinu - dagbók | |
|
13.4.07 ( 2:49 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir jæja þá er komið að því, London á morgun og svo Rúmenía. Ég er að tína ofan í töskuna eitthvað af lufsum til að hafa með mér, sem betur fer er nóg til af hreinum undirfatnaði, en fátt er verra en að verða uppiskroppa með svoleiðis á ferðalögum. Ég er nett spennt, hef ekki matarlyst en það er nú svo einstök upplifun að ég hef ekki áhyggjur af því. Ég tek tölvuna með mér og vona að ég komist í netsamband og geti sett myndir inn á, til vara hef ég stofnað bloggið gudrunvala.blog.is ; ) Frumburðurinn fór í endajaxlatöku í dag, ég sótti hann á Skagann, keyrði hann til kjálkasérfræðingins og beið eftir honum. Svo kíktum við á pabba og mömmu, sem eru nýkomin heim frá Indlandi. Það er ekki sjón að sjá mömmu en hún veikist heiftarlega úti, trúlega af Kóleru og nú er hún í fyrsta sinn horaðri en ég (en ég er nottla ekki horuð) farin aftur að troða i töskuna.... # ( 3:31 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir ![]() Tónleikarnir voru upplifun. Ég er ekki fan, en naut þess virkilega að sjá og heyra Björk. Af því að ég tilheyri litla fólkinu sá ég minna en ég vildi, en nóg til að njóta. Við hlustuðum ekki lengi á Hot Chip, heldur drifum okkur heim í Borgarnes. Í gær var ég í Heiðarskóla þar sem ég er stundum á þriðjudögum og svo kenndi ég í Landnemaskólanum. Tengdapabbi varð áttræður þannig að eftir kennslu brenndi ég suður í veislu. Gylfi var farinn á undan með börnin. Afmælið var mikið fjör, og gaman að allir afkomendur hans gátu komið. Nýja kúlan í fjölskyldunni lét sig heldur ekki vanta ; ) En það var mikið vesen á mér í dag. Fyrst kenndi ég, svo átti ég tíma í nuddi sem var frábært því ég er með krónískt herðablaðavandamál (vængstúfarnir sko) en fékk sms frá tannlækninum sem vildi fá Elís Dofra. Ég varð að sinna því eins og góðri móður sæmir, enda ljóst að tannumhirða íslenskra barna er langtum betri en marga annarra. Ég vann auðvitað í dag til fimm eins og venjulega, er m.a. að undirbúa framlag mitt í Búkarest. Eftir vinnu og Bónusferð var ég örmagna og lagði mig á meðan örverpið horfði á sjónvarpið. Gylfi fór suður í skólann og ég var að átta mig á því að ég missti af stjórnarfundi sem ég átti að vera á í kvöld... o jæja... # ( 4:43 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir Kannski seint að segja Gleðilega páska en morgundagurinn er jú eftir. Við ókum 1000 km í gær, fram og til baka í fermingarveislu norður i Öxarfirði. Verið var að ferma þær gullfallegu tvíburasystur Auði og Guðrúnu Kristjánsdætur. Alltaf er jafn gaman að koma norður, en leiðin er alltaf jafn löng. Þess vegna förum við alltof sjaldan og við gáfum okkur ekki heldur tíma til að stoppa neitt núna, en svo einkennilega vill til að það er alveg brjálað að gera.... Ég fer til Rúmeníu n.k. laugardag, næ reyndar degi í London og er búin að mæla mér mót við Ben. Það er nákvæmlega ár síðan við kynntumst í Kraká og verður gaman að hitta hann aftur, en ekki bara á netinu. Fyrir ferðalagið þarf ég að undirbúa mig helling og klára mörg mál. Ferðin tekur viku og ég er orðin gífurlega spennt. Annars er ég bara slök, búin að borða eitt stk. páskaegg í dag og hlaupa! Málshátturinn minn var ,,betra er að róa en reka" eða eitthvað á þessa leið. # ( 1:34 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir Eigandi þessa bloggs ákvað að eiga langan dag og fór á fætur talsvert fyrir hádegi. Til þess auðvitað að læra, en mjótt er á munum þess hvort mér tekst að ljúka áfanganum sem ég er í, eða hvort ég neyðist til að gefa skít í hann. Ég er alla vega ekki á þeim buxunum að gefast upp fyrr en öll von er úti. Ég lærði til kl. sex, fór þá mína 5 km. Af því við vorum með matarboð í gærkveldi voru nægir afgangar og ég þurfti ekki annað en að hita upp herlegheitin. Auðvitað var ég með filippískan mat sem heppnaðist mjög vel. Ég er eiginlega hætt að nenna að elda íslenskan mat. Við förum í fermingarveislu á morgun, og svo tekur lesturinn við á nýjan leik. En frúin á heimilinu er búin að kaupa sér miða á tónleikana með Björk og svo er ég búin að redda mér Pólverjum sem fylgdarsveinum. Segiði svo að þeir séu ekki ómissandi þessar elskur. # ( 5:34 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir Eitt af því sem ég get alls ekki skilið er hvers vegna blogger uppfærir ekki eldra efni. Þar sem ég hef bloggað í 5 ár fannst mér líklegasta skýringin sú að ,,eldra efni" næði ekki yfir lengra tímabil en 5 ár svo ég ætlaði að eyða árinu 2002 út, en sökum kunnáttuleysis tókst það ekki. Klaufinn ég. Þá velti ég því fyrir mér hvort ég eigi að gefa skít í blogger og fara á moggabloggið af því að það er svo trendí nútildags, en ég hef löngum verið treg í taumi og átt erfitt með að fylgja straumnum... en hver veit hvað gerist á endanum. Maður er kannksi ekki eins spes og maður heldur. Einkadóttirin tók þátt í danssýningu i dag, en hún hefur verið að æfa dans á vegum Símenntunar í litla "Demantinum". Þjálfari er hin frábæra Otilija frá Litháen sem hefur náð mega árangri með stúlkurnar. Af ástæðum sem Mr. Blogger einum er kunnugt um get ég ekki sett mynd inn á. í dag fór ég í heimsókn og sá fallegustu börn í Borgarnesi (fyrir utan mín) þau eru frændsystkin, annað bæði íslenskt og filippeyskt, hitt filippeyskt.... alveg yndisleg og ég þakka fyrir að Íslandi skuli hafa auðnast sú gæfa að útlendingar setjist hér að. Ég man hvað mér fannst leiðinlegt þegar ég var að alast upp að ég skyldi ekki þekkja neinn útlending og aldrei sjá neinn sem leit öðruvísi út en við Íslendingar. Á sumrin hitti maður Kana, en ég segi nánar frá því síðar.... en hvað ég vildi sagt hafa er að mér líður mun betur á Íslandi eftir að mannlífsflóran varð fjölbreyttari og litríkari. Ísland fyrir alla, konur og kalla, krakka með hár og kalla með skalla : ) # ( 3:02 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir Afskaplega góður sunnudagur, útsof, hlaup og góður matur. Ég fundaði með stjórn Margmenningar í dag, en við höfum verið í húsnæðishrakningum sem ekki sér alveg fyrir endann á. Undanfarið höfum við verið að hittast á Dússabar, en það er ekki hentugur staður.... # ( 4:42 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir ![]() Ég er farin að auka hlaupin eftir að eiginmaðurinn færði mér ,,ipod shuffle" þegar hann kom heim frá London. Nemandi minn frá Kína sá um að fylla tækið af músík og satt best að segja er sú músík mjög sérstök. Allt í lagi að hlusta á hana við hlaupin, en ég skil svo sem ekki mjög mikið. Ég veit að bloggið hefur ekki verið í fyrsta sæti hjá mér upp á síðkastið, hef bæði verið óvenju (?) bissí og svo þreytt þar á milli. Fyrir nú utan ríkulegt félagslíf. Ég eyddi óvart síðustu færslu (sorry Mía, þú ert ættgengt klár) en skeyti hér aftur inn slóðinni á kvissið, og endilega tékkið á hversu vel þið þekkið mig. http://www03.quizyourfriends.com/quizpage.php?quizname=070326070629-167874 # ( 5:18 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir ...ég sagði þeim að galdurinn væri að gera sem minnst af heimilisstörfum, hlaupa nokkra kílómetra á viku og skemmta sér nóg.......en satt best að segja hef ég enga skýringu á því að ég skuli ennþá vera með unglingabólur, ungbarnakvap og þokka konu á þrítugsaldri... # Þemað í íslenskukennslunni í kvöld var ,,Venjulegur dagur". Eðlilega spyr ég stundum sjálfa mig hvort ég muni einhvern tímann eiga venjulegan dag, en ég minnist þess ekki að hafa upplifað þannig dag í áraraðir. Það er helst að hátíðis- og frídagar séu venjulegir dagar... en þrátt fyrir að skipuleggja mig nokkuð fram í tímann og gera verkefnalista fyrir hvern dag, er alltaf ótal margt á hverjum degi sem er ófyrirséð og kemur á óvart. Þannig var það líka í dag, en eftir kennslu í GB í morgun fór ég suður og tók þátt í Akademia verkefni ásamt fólki úr Evrópu. Fyrst hlustaði ég á Einar í Alþjóðahúsi flytja fyrirlestur, en tók svo þátt í málstofu eftir hádegi. Ég var í hópi tvö ásamt Svía, Dana, Norðmanni, Íra og Íslendingi og ræddum við hvernig bæta megi ráðgjöf til innflytjenda. Nú nú... í miðjum umræðum kemur til tals að ég eigi 4 börn og þau elstu séu að verða fullorðin. Ég varð að hætta að þykjast vera 29 (eins og ég geri núorðið mjög trúverðuglega) og viðurkenna réttan aldur. En þetta var eins og að kasta sprengju í hópinn. Írska konan neitaði að halda áfram að tala um innflytjendur og vildi vildi vita leyndarmálið um eilífa æsku og fegurð.... enda væri það mun mikilvægara málefni. Borðarðu oft fisk? tekurðu lýsi? ferðu oft í Bláa Lónið? Hvaða krem notarðu? af því að blogger er með stæla, koma svör mín á undan þessari færslu ; ) # ( 4:29 PM ) Guðrún Vala Elísdóttir Ég gat ekki lokið við helgarfrásögnina í gær, af því að blogger vill ekki langa texta. En sum sé á laugardeginum reif Gylfi sig upp og fór í skólann (eitthvað er hann að læra) en ég lúrði nánast til ellefu, en þá fór ég með Kaupþingsskvísum í Laugar -spa, þar sem við lágum í bleyti og slöppuðum af í tvo klukkutíma. Algjörlega stórkostlegt fannst mér...... Eftir að hafa slappað af, fór ég heim á hótel og slappaði meira af. Svo tók nú tímann sinn að hafa sig til, en aldurinn er vissulega farinn að segja til sín í þeim efnum. Svei mér þá alla daga. Árshátíð Kaupþings var sú besta hingað til, bæði hvað varðar mat og skemmtiatriði. Hreiðar var búinn að lofa okkur þessu, en við hittum hann þarna í Laugunum. Olsen bræður voru náttúrulega aðalnúmerið en þemað var Júróvísjón. Eins og í fyrra vorum við nú ekkert lengi á tjúttinu. Mér gengur ekki vel að dansa í pallíettukjól og pinnahælum.... Af hótel Sögu fer ekki gott orðspor um þetta leyti. Þar átti sér stað nauðgun um helgina og erlendar vændiskonur hafa haft þar greiðasölu. Án þess að kveikja nokkurn tímann á sjónvarpinu gat ég ekki betur séð en að ennþá væru boði klámrásir. Seinni nóttina sem ég gisti hvein svo mikið í húsinu (vindur) að ég gat ekki sofið. Ég var eiginlega bara fegin að fara heim á sunnudeginum og kom við í Skrúðgarðinum á Akranesi, sem sést á blogginu hennar Gurríar. Árans myndavélar alltaf. # |
|