
![]() |
Ég heiti Elís Dofri Guðrúnar Gylfason og er yngsti prinsinn á heimilinu. Ég fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi þann 25. júní 2001 og var þá 3705 gr. og 53 cm. Ég var skírður 24. ágúst 2001 á 10 ára brúðkaupsafmælinu þeirra pabba og mömmu. Ég heiti Elís eins og móðurafi minn og Dofri út í bláinn. Ég er orðinn eins árs og farinn að hafa sjálfstæðar skoðanir á ýmsu. Mest gaman þykir mér að leika úti í sandkassa með skóflu og burra með bíl og mömmu til hrellingar finnst mér gaman að príla upp og niður tröppurnar. Myndin hér til hliðar var tekin þegar ég vildi ekki fara í bað með Salvöru Svövu, en eins og sést á myndunum hér að neðan er ég svakalega sætur og mjög vinstri grænn á litinn. |