Um mig og mína fjölskyldu

Guðrún Vala er fædd í Reykjavík 28. nóvember 1966 og ólst upp á Hrappsstöðum í Laxárdal Dalasýslu. Ég er Dalamaður í húð og hár og er í blóðflokknum A+, eins og flestir sannir Dalamenn. Þó er ég orðin meiri Borgnesingur núna. Ég er feministi, jafnréttis- og mannréttindasinni og hef áhuga á flestum kimum mannlegs lífs.

Ég kynntist mínum eina sanna Gylfa árið 1985 og bað hann mín þá þegar. Nákvæmlega sex árum síðar, þann 24.ágúst 1991 gengum við í hjónaband. Gylfi er aðalbókari hjá Norðuráli hf. Ríkidæmið okkar eru börnin fjögur. Þau eru Sölvi Guðrúnar Gylfason fæddur 19. apríl 1988, Nökkvi Guðrúnar Gylfason fæddur 19. október 1989, Salvör Svava Guðrúnar Gylfadóttir fædd 2. desember 1997 og Elís Dofri Guðrúnar Gylfason fæddur 25. júní 2001. Myndin hér að neðan sýnir Gylfa og krakkana og var tekin sumarið 2002.

Við búum í Borgarnesi frá miðju ári 1999. Þar áður áttum við heima einn vetur í Laugargerði á Snæfellsnesi, 7 mánuði í Árósum í Danmörku, 3 ár í Búðardal en upphaflega hófum við okkar búskap í Kópavoginum.

Foreldrar mínir eru Elís Gunnar Þorsteinsson og Emilía Lilja Aðalsteinsdóttir , þau eru bæði úr Dölunum en búa núna í Kópavogi. Pabbi fæddist í Þrándarkoti í Laxárdal árið 1929 og var yngstur sinna systkina. Því miður naut hann ekki þeirra gæfu að fá að alast upp hjá foreldrum sínum nema fyrstu árin, því Þorsteinn afi minn missti heilsuna og varð að bregða búi. Heimilið var leyst upp og Alvilda amma mín fór í vinnumennsku suður. Pabbi ólst upp á ýmsum bæjum í Borgarfirði og Kjalarnesi. Sem ungur maður kom hann aftur í Dalina og var þá svo lánsamur að krækja í heimasætuna í Brautarholti. Hann starfaði lengst af hjá Vegagerð ríkisins, byrjaði á því að vera kúskur þegar hann var smástrákur, vann á veghefli og varð síðan Héraðsstjóri í Dölunum. Síðustu starfsárin sín vann hann hjá Vegagerðinni í Borgartúni Reykjavík. Nú ræktar hann kartöflur, vínber, gúrkur og tómata og passar afa og langafabörnin. Og tekur á móti einhverju okkar heimsókn á hverjum degi.

Mamma fæddist í Brautarholti í Dölum árið 1934. Henni gekk mjög vel í skóla en átti ekki þess kost að hljóta menntun eftir að fullnaðarprófi lauk. Aðalsteinn Baldvinsson afi minn og amma mín Ingileif Björnsdóttir, voru athafnafólk og ráku verslun, bensínsölu, símstöð, sláturhús og voru með búskap. Því miður voru þau ekki framsýn á réttindi kvenna og afi sagði við mömmu þegar hún var að suða um að fá að fara í skóla ,,Allt sem þú þarft að kunna er að sjóða graut og gera brauð og það getur þú lært hér hjá henni mömmu þinni". Þá var hún svo stálheppin að kynnast pabba, þau trúlofuðust, eignuðust Leif Stein og giftu sig.

Pabbi og mamma byrjuðu að búa í Búðardal en keyptu síðar jörðina Hrappsstaði áður en ég fæddist. Þau fluttu í Kópavoginn 1985.

 

Systkini mín eru Leifur Steinn, Bjarnheiður, Alvilda Þóra og Gilbert Hrappur. Síða um þau er hér


 

 

 

 

 

.

til baka