Ég heiti Salvör Svava og er einkadóttirin á heimilinu. Ég fæddist 2. desember 1997 á Sjúkrahúsinu á Akranesi og var þá 3805 gr og 53 cm. Þegar ég var sex vikna gömul fluttum við til Danmerkur og bjuggum þar í rúmlega hálft ár. Ég og mamma vildum helst búa þar lengur en pabbi og strákarnir fengu að ráða og við fluttum til Íslands aftur. Við erum búin að búa í Borgarnesi frá 1999 og hér finnst okkur frábært að eiga heima. Samt langar okkur aftur til Danmerkur og við mamma stefnum að því síðar eða þegar mamma fer í doktorsnám. Annars þurfum við stundum að berjast við karlaveldið því við erum í minnihluta hér. Ég á sko þrjá bræður þannig að það eru tvær á móti fjórum. Að vísu er ég eina prinsessan og mér líkar það vel. Ég er í leikskóla sem heitir Klettaborg og deildin mín heitir Kattholt. Bestu vinkonur mínar heita Magga og Erla Björk. Ég var á sundnámskeiði í lok maí og er búin að læra fullt. Hér fyrir neðan er mynd af mér sem mamma tók síðasta daginn á námskeiðinu.

13. júní: Ég er núna á leikjanámskeiði á vegum Skallagríms sem er á milli 10 og 12 virka daga. Mamma er svo hjartveik að hún vildi ekki að ég færi í sund nema að Nökkvi bróðir minn kæmi með og passaði mig. Og ég sem er búin að fara á sundnámskeið! Ég spurði mömmu hvort Nökkvi væri ekki nógu lítill til að koma með mér í ,,stelpukofann" (klefann) en hann mátti það alls ekki. Þannig að ég varð að bjarga mér þar sjálf. Mamma ætlar að setja mynd af mér og krökkunum sem eru á námskeiðinu hér að neðan. Annars er mamma voða spennt fyrir einhverju sem kallast þögul og friðsamleg mótmæli þessa dagana og vill endilega að ég læri svoleiðis. Hvað er hún að meina með því eiginlega??

Svo er hér ein mynd fyrir pabba, en hann hljóp hálfmaraþon í Akraneshlaupinu um daginn á meðan mamma þurfti að druslast með okkur fjögur með sér í skemmtiskokkinu. Hún skokkaði nú ekki mikið af því að Elís Dofri var í kerrunni, stundum þurfti hún að halda á mér, Sölvi var í frekar mikilli fýlu og mamma þurfti stanslaust að reka á eftir honum, ..........en Nökkvi stóð sig eins og hetja. Alla vega hér fyrir neðan er mynd sem er tekin af okkur eftir Akraneshlaupið. Ég er þessi sem er sætust á myndinni !!

DAGBÓKIN MÍN

til baka