Landnám
Íslands
höfundur
Anna Kristín Magnúsdóttir
Kynning | Verkefni| Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða
Kynning
Hér á að vinna verkefni um landnám Íslands. Í byrjun á að horfa á myndband um landnám Íslands. Gefnar eru vefslóðir sem leita á í. Einnig er frjálst að leita á vefnum að efni svo og á bókasafni. Hér eru fjögur verkefni sem þú átt að vinna. Ætlast er til að það taki þig um tvær kennslustundir að vinna hvert verkefni og verða þau unnin næstu fjórar vikur eitt verkefni á viku
Verkefni
Hér hefur þú fjögur verkefni, þú ræður í hvaða röð þú vinnur þau.
· Skrifaðu ritgerð um landnám Ingólfs Arnarsonar og aðdraganda þess að hann
hélt til Íslands.
· Lestu um landnámsmenn og konur á Íslandi og búðu til spurningar upp úr því
Efni sem þú lest. Minnst 20 spurningar.
· Skrifaðu ritgerð um það sem landnámsmenn höfðu með sér til Íslands.
· Búðu til leikþátt sem lýsir því hvernig Ingólfur Arnarson valdi sér stað til að setjast að á. Hér þarf einnig að vera lýsing á leikmynd.
Bjargir
Myndband:
Landnám Íslands
Bækur:
Íslenskur Söguatlas, 1991
Iðunn. Reykjavík
Jónas Jónsson, (á,á) Íslanssaga, Ríkisútgáfa námsbóka.
Vefur:
Landnám Íslands. http://rvik.ismennt.is/~neyglob/verk/landnam/landnam1.html, Hér er að finna ýmsan fróðleik um landnám Íslands.
...
1.
Byrjaðu á að kynna þér það verkefni sem þú ætlar að leysa.
2.
Settu niður fyrir þér í stórum dráttum hvernig þú ætlar að nálgast
viðfangsefnið.
3.
Horfðu á myndbandið um landnám Íslands.
4.
Farðu inn á vefinn og lestu þér til um efnið sem um á að fjalla.
5.
Punktaðu hjá þér.
6.
Farðu á bókasafn og fáðu þær heimildir sem þig vantar til viðbótar.
7.
Hefðu nú skipulega úrvinnslu heimilda.
8.
Settu upp og gangtu frá verkefninu
Mat
Ætlast er til að þú skilir vinnu þinni á þitt heimasvæði í tölvunni merktu verkefnið með heiti þess og nafni þínu. Verkefnin eiga að vera í þeirri röð sem þau eru talin upp hér að ofan. Þau eiga vera skipulega uppsett og huga skal að stafsetningu.
Aðaláhersla verður lögð á efnislegt innihald verkefnanna einnig kemur
þó til uppsetning og útlit. Gefin verður einkunn fyrir hvert verkefni fyrir sig sem síðan verður
sett fram í einni lokaeinkunn.
Niðurstaða
Markmið þessa verkefnis er nemandi góður að þú fræðist á eigin spítur
um uppruna byggðar á Íslandi og getir unnið sjálfstætt úr heimildum. Það er von mín að þú sért nú einhvers
fróðari um sögu landsins þíns og þeirra sem það byggðu í upphafi. Einnig
kynnist þú því að nota margskonar heimildir við vinnu þína.
Seinast uppfært 15. Nov. 1999