|
Kennari:
Gylfi Guðmundsson
http://www.ismennt.is/not/gylfig/
Kynning Ágiskun|
Vafri
| Leitarvélar | Mat
| Niðurstaða | Bónus
Kynning
Internetið er samheiti yfir
tölvunet sem nær yfir alla jarðarkringluna. Þúsundir
tölvuneta eru tengd saman og milljónir af tölvum
tengjast síðan saman í gegnum tengingu sem heitir TCP/IP
(Transmission Control Protocol/Internet Protocol). Þegar við
tengjumst netinu eru okkur allir vegir færir - og - við greiðum
einungis fyrir símtal til netþjóns okkar burtséð
frá hvað við erum að gera á netinu.
Það kostar jafn mikið að skoða heimasíðu
Grunnskóla
Blönduóss og að skoða Kongehuset
í Danmörku! Vafrarinn er sérstakt forrit sem getur lesið
og birt vefsíður á þínum skjá. Sniðið
á vefsíðum er kallað HTML (Hypertext Markup
Language). Allar síður eru merktar með þessum hætti
og þær síðan vistaðar sem hreinar textaskrár.
Stafirnir http standa fyrir hypertext transfer protocol.
Allar vefslóðir (URL=Universal Resource Locator) byrja á
þessari skammstöfun Kennaraháskólinn hefur slóðina
(URL): http://www.khi.is
Njarðvíkurskóli hefur slóðina
(URL) : http://njardvikurskoli.is Upplýsingar á Vefnum eru geymdar á
vefsíðum sem eru stundum kallaðar heimasíður.
Internetið gefur okkur sérlega skemmtilega möguleika vegna
þess að þar áttu kost á að finna nánast
hvað sem er.
Það er eins og þú sért komin(n)
í stórt bókasafn (það stærsta í
heimi) sem hefur að geyma nánast allt milli himins og jarðar.
Gagnagrunnurinn hefur að geyma mörg hundruð milljón
síður.Það er gaman að skoða slíkt safn.
Þarna áttu kost á að finna efni sem þú
hefur áhuga á, efni sem þú þarft á
að halda vegna starfs, náms eða áhugamála.
Internetið er endalaus uppspretta fyrir kennara! Og það
er ekki aðeins texti sem hægt er að skoða: Þú
getur horft á
sjónvarp
úti um allan heim,hlustað á útvarp,
séð myndirog
videomyndir.
En til þess að geta fundið það
efni sem þú hefur áhuga á þarftu að
kunna undirstöðuatriði í að leita að efni á
vef. Þú þarft að þekkja leitarvélar
og hvernig þær eru notaðar. En þú þarft
að vita svolítið meira. Segja má að leitaraðferðir
séu þrjár:
1. Að nota ágiskun
- oft er auðvelt að átta sig á "léni" eða
vefþjóni stórfyrirtækis.
2. Að nota vafra
3. Að nota leitarvélar

Ágiskun
1. Ágiskun -
oft er auðvelt að átta sig á "léni" eða
vefþjóni stórfyrirtækis.
Heimilisfang á vefslóð
byrjar venjulega á www (skammstöfun fyrir world
wide web) og því lýkur með nafni
(skammstöfun) viðkomandi lands. Ísland hefur t.d endinguna
is.
Nafnið á milli www og is er heiti á
vefþjóni eða léni.
Dæmi: www.centrum.is. Hér er centrum nafn á vefþjóni.
Þetta er reyndar heimilisfang eða vefsíða hjá
Miðheimum h/f.
Hér eru sýndar endingar nokkurra landa:
|
Land:
|
Skammst.:
|
Land:
|
Skammst.:
|
|
Ástralía
|
au
|
Indland
|
in
|
|
Brasilía
|
br
|
Japan
|
jp
|
|
Bretland
|
uk
|
Kína
|
cn
|
|
Canada
|
ca
|
Noregur
|
no
|
|
Danmörk
|
dk
|
Pólland
|
pl
|
|
Finnland
|
fi
|
Sviss
|
ch
|
|
Frakkland
|
fr
|
Svíþjóð
|
se
|
|
Holland
|
nl
|
Þýskaland
|
de
|
Oft er hægt að giska á vefþjón
eða "lén". Njarðvíkurskóli hefur lénið
"njardvik". Vefsíðuna er því hægt að
finna með því að slá inn www.njardvik.is.
Reykjanesbær hefur vefþjón sem kallast
rnb. Reykjavík hefur
rvk og Hafnarfjörður hefur
hafnarfjordur
 |
Finndu nú vefsíður Reykjanesbæjar,
Reykjavíkur og loks vefsíðu Hafnarfjarðar. |
-
Stjórnarráðið hefur trúlega
annaðhvort
www.stjornarrad.is eða kannski frekar skammstöfunina
stjr og hefur þá
www.stjr.is
Kannaðu þetta!
Sláðu slóðina inn hér efst uppi og ýttu
svo á enter. - Geturðu kannski í framhaldi af
þessu fundið Menntamálaráðuneytið?
-
Finndu Íslenska menntanetið, ismennt. Það
er mjög vandaður vefur sem gefur þér mikla möguleika.
Geturðu fundið hvaða skólar á Suðurnesjum
eiga heimasíðu? Hve margir eru þeir á Norðurlandi
vestra eða í Reykjavík ?
-
Hvað segir Morgunblaðið í dag.
Þú getur farið í leitarvef - en er ekki líklegt
að þeir noti www.mbl.is ??
Hvað um dagblaðið, er ekki slóðin
www.visir.is
-
Já, oft er hægt að geta sér til um
URLið eða veffangið. Maður slær bara inn www.<nafnið>.is.
Hvernig er líklegt að coke á
Íslandi hafi sitt heimilisfang ? Prófaðu þig
áfram!
-
Geturðu giskað á netfang Volvo í Danmörku?
- eða í Svíþjóð. Prófaðu.
-
Samband Sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur
sérstakt lén eða hefur eigin vefþjón, "server".
Getur verið að þeir noti sss ?
-
Hvernig verður þá netfangið (URLið)
hjá sss?
-
Spáum áfram í þá sem hafa
eigið lén eða eigin vefþjón (server): Geturðu
fundið Veðurstofu Íslands án þess að þekkja
veffangið ?
-
Finndu Samvinnuskólann á Bifröst
-
Geturðu fundið Scania í Svíþjóð?
Bandaríkin nota ekki us sem endingu. Það þarf
því svolítið að gæta sín á
endingum þar. Þær eru mismunandi:
| com:
einkafyrirtæki/einstaklingur á tölvuna |
| edu:
tölva í skólum, framhaldsskóla eða háskóla |
| gov:
tölvukerfi Bandaríkjastjórnar |
| mil:
tölvukerfi Bandaríkjahers |
| org:
önnur fyrirtæki eða stofnanir |
Ætlarðu að kíkja á
Clinton í hvíta húsinu? Gættu þess þá
að rugla ekki saman .com
og .gov !
Geturðu fundið Hvíta húsið
í Bandaríkjunum - er það kannski whitehouse?
-
Finndu nú vef cokacola í Bandaríkjunum.
-
Finndu FBI (mundu að nota .gov)
-
Hvað finnur þú ef þú slærð
inn www.abba.com ?
-
Sláðu inn althingi.com
-
Farðu í frjálsa leit en notaðu þessa
aðferð!

Vafri
2.
Við notum vafra
Við skoðum nú leitarvef eða veffangaskrá
(síðusafn) sem heitir YAHOO!
Skoðaðu vandlega það sem kemur upp á
skjáinn - YAHOO! Eins og þú sérð
er þetta flokkaður vefur, u.þ.b. 22 flokkar. Hjá
YAHOO! eru skráðir ótal vefir stofnana, fyrirtækja
og einstaklinga. Við getum leitað í þessum skrám,
"vafrað" í gegnum þetta og fundið það sem
þú leitar að. Þú kafar ofan í vafrann!
-
Langar þig að finna t.d. eitthvað um menntamál
á Íslandi? Þá ferðu
á Regional og velur þar- Countries - Iceland - Education.
Prófaðu! Við eyðum ekki löngum tíma í
þetta en veljum annað dæmi og látum það
nægja:
-
Þú vilt kynna þér ríkisstjórn
og stjórnmál á Íslandi. Farðu
þá á YAHOO! og veldu Government.
Síðan velur þú ICELAND.
Hvað færðu á skjáinn ?
-
Kannski eitt enn: Hvernig skoðar þú ríkisstjórnina
í Danmörku ?
-
Farðu í frjálsa leit en notaðu þessa
aðferð!

Leitarvélar
3. Við
notum leitarvélar
Og þá er komið að því
að skoða leitarvélar. Þær eru mjög margar.
Það er gott að vita um þær allar en í
rauninni þarf maður kannski 1 - 3 leitarvélar til
þess að leita með. Ein þekktasta og vinsælasta
vélin er Google. Ég
nota hana fyrst og fremst. Þá er YAHOO!
einnig
afar vinsæl leitarvél, hún er kannski frekar safn vefsíðna!
Sjá hér að ofan. Hún fékk nýlega
hæstu einkunnina í þekktu tölvublaði. En sjáðu
allan þann aragrúa af leitarvélum
sem er til - og hér eru enn fleiri, sjáðu
hérna !! Við notum lítið af þessu en það
er gaman að vita af þeim!
 |
En við eigum ágæta íslenska leitarvefi.
Hér ofar var nefndur vefur sem heitir leit.is
Hann er býsna góður ! Hér er einnig alveg nýr
leitarvefur sem leitar í 8 leitarvélum áður en
hann gefur svar! |
Hann heitir The BigHub.com.
 |
Loks er hér glænýr og skemmtilegur íslenskur
leitarvefur sem heitir einfaldlega ha.is.
Hann er rekinn af Íslandsvefjum ehf. Hann byggir á
nýrri tækni frá breska hátæknifyrirtækinu
Autonomy. Yfirburðir Autonomy tækninnar felast í að
ha.is en mun nákvæmari og yfirgripsmeiri en eldri leitarvélar.
Hin nýja tækni býður notandanum upp á
að skrifa leitarskilyrði á hefðbundnu eða ,,venjulegu"
máli og eru engar hömlur á notkun stafa eða tákna.
Sláið einfaldlega inn spurningu og ýtið á
spyrja. Athugið að því ítarlegri sem spurningin
er, því nákvæmari verða svörin. Leitin
er afar notendavæn og nýtist jafnt byrjendum sem þeim
sem hafa góða þekkingu á Internetinu. |
En skoðum leit.is betur: Sláðu með
músinni á leit.is.
Sláðu inn í leitarreit orðin helgi+arnarsson
og
sjáðu hvað kemur upp.
Sláðu inn Höfðaskóli.
Hvað kemur upp?
Og hvað er þetta
?
Taktu eftir að við höfðum + á
milli orðanna. Meira um það á eftir!
 |
Sláðu inn þitt
eigið nafn. Það er mjög líklegt að þú
finnir nafnið þitt á netinu! Kannaðu það! |
Hér koma svo nokkur atriði sem þú
þarft að hafa í huga þegar þú leitar
með LEITARVÉL:
Athugaðu að leitarvélar
gera stundum greinarmun á stórum staf og litlum
Stafsetning leitarorðanna verður
að vera nákvæmlega rétt.
Notaðu gæsalappir utan um þau orð sem
eiga að birtast saman eða hlið við hlið, t.d. "Flugfélag
Íslands"
Notaðu plús fyrir framan orð sem leita skal
að t.d.
Reykjavík +myndir. Taktu eftir hvar + er staðsettur.
Með þessari aðferð áttu að fá síður
með myndum frá Reykjavík !
Plús er einnig notaður ekki ósvipað
og gæsalappir. Þá er ekkert bil á milli orðanna.
Mínus er notað með orði sem þú
vilt ekki láta koma fram í leit, t.d. Reykjavík
-myndir.
Þú ætlar þá að sleppa
myndasíðum
Viltu leita að öllum vefsíðum sem vísa
yfir í vef ismennt.is t.d. Þá setur þú
link:
fyrir framan slóðina. Þannig er hægt að sjá
hve margar vefsíður vísa yfir í þína
síðu. T.d.: link:http://www.ismennt.is. Sé bætt
-url:http://www.ismennt.is
við leitarstrenginn eru tenglarnir frá ismennt.is síðunni
sjálfri teknir frá leitarniðurstöðunum.
Setja url: fyrir framan. T.D. url:http://www.ismennt.is.
Þá er leitað að öllum vefsíðum sem
innihalda http://www.ismennt.is í veffangi sínu.
title:<fyrirsögn>. Þá er
leitað að öllum vefsíðum sem innihalda "fyrirsögn"
í fyrirsögninni. T.d.: title:danska. Þá
færðu upp vefi sem hafa DANSKA sem fyrirsögn. Nóg
að sinni! Prófum nú!
-
Getur þú fundið Ólaf Ragnar Grímsson
á leitarvél? Hvernig er heppilegast að gera það?
-
Sláðu inn álegg á
Google.
Færðu eitthvað upp?
-
Getur þú fundið eitthvað um slátur?!
-
Jú það er nánast hægt að
finna allt á netinu!
-
Farðu nú í frjálsa
leit en notaðu þessa aðferð!

Margar leitarvélar
bjóða upp á það sem kallað er Boolean
leit. Þá eru m.a. þessi orð eða aðferð
notuð:
-
AND (notum hástafi), einnig er hægt
að nota táknið & eða +
Þá finnur vélin síður þar
sem leitarorð koma saman fyrir á síðu. T.d. myndi
leitin Iceland AND news finna síður þar sem þessi
tvo orð koma bæði fyrir.
-
OR
Finnur síður þar sem eitt eða fleiri
leitarorð kemur fyrir. T.d. myndi leitin Iceland OR news finna síður
þar sem annað hvort þessara orða kemur fram.
Síðurnar sem finnast geta haft bæði orðin en ekki
endilega.
-
NOT eða táknið !
Þessi skipun útilokar ákveðin orð.
Ef við sláum inn Iceland AND NOT news
koma upp allar þær síður sem orðið Iceland
kemur fyrir nema þær sem innihalda líka orðið
news. Athugið að NOT getur ekki staðið eitt heldur verður
önnur skipun að standa með því eins og AND.
-
NEAR
Finnur síður sem innihalda tvö eða fleiri
tilgreind orð eða orðasambönd þar sem minna en 10
orð eru á milli þeirra. Sláðu inn í
leitarvél
Mary NEAR lamb. Hvað
kemur upp?
Sjá nánar um þetta hjá
AltaVista
!

Stýfð leit:
Leitarvélarnar Lycos, AltaVista og Google bjóða
upp á svokallaða stífða leit en það þýðir
að þú getur slegið inn upphaf orða t.d. libr*
og þá leitar AltaVista að öllum þeim orðum
sem hefjast á libr, t.d. libraries, librarians ofl. Í Lycos
á að nota táknið $ í stað *.

|