
Vefleiðangur
Námsefni
ætlað kennaranemum í KHÍ, 3. misseri
http://njardvik.ismennt.is
Kynning | Athugun | Bjargir | Ferli | Webboard
| Leit
|
Salvör Gissurardóttir lektor kynnti vefleiðangra eða
Webquest eins og þetta fyrirbæri heitir á ensku fyrst hér á landi. Áður en þangað er haldið
hefur kennari búið til vefsíðu sem kallast "Vefleiðangur", kallast einnig Webquest eða webqnemi. Á síðunni eru svo m.a. ýmis verkefni
sem eru ætluð nemendum. Verkefnin vinna þeir í tölvuveri skólans. Sé vefleiðangurinn vel
saminn og með góðum tengingum í ýmsar upplýsingaveitur má gera ráð fyrir að
verkefnið verði skemmtilegt og nemendur læri af verkefnavinnunni það sem til
var ætlast!
Athugum þetta nánar: Hér er hægt að skoða dæmigerða Fyrirmynd
að Vefleiðangri.
Bjargir |
|
Við förum ekkert í þá hluti núna hvernig á að búa til slík
próf enda er tími okkar naumur. En það er ástæða til að þekkja slóðina að
þessum möguleika. Hann er hér. Sjáðu einnig
hvað Ísmennt hefur upp á að bjóða. Þjónustan er góð og tengingar eru út um
allar jarðir og nýtast kennurum og skólum fyrst og fremst. Nemendur mínir í Kennaraháskólanum áttu að skila vefleiðöngrum. Hér fyrir neðan má sjá hverju þeir skiluðu. Rétt er að vekja athygli á að ég hafði ekki kennt þeim vefsíðugerð áður en verkefnið var unnið. Sjáið hér! Fleiri vefleiðangrar: Upplýsingatækni og
skólastarf, Lífsleikni,
Landafræði, Þingvellir, Handverk,
FerliNotaðu nú tímann til að kynna þér Vefleiðangra og hvernig þeir eru settir upp (sjá hér fyrir ofan). Þú munt vafalítið verða ein(n) þeirra sem notar slíkt í kennslu. Með prófamöguleika Ísmenntar er svo hægt að láta nemendur taka próf í
tölvuveri. Vélin fer sjálfkrafa yfir svörin og gefur einkunn!
WebboardNæstu kennslustundir verða notaðar til að kynnast Webboard eða Vefráðstefnukerfi.
Kerfið notum við svo til
samskipta, þið innbyrðis og svo til samskipta við mig. Þið skilið m.a.
verkefnum inn á webboard. Við skulum skoða þetta og læra að nota
það! Nú lærum við á þetta samskiptaform sem er í sjálfu sér einfalt. Vona
að ykkur gangi vel með þetta!
LeitSeinna í vikunni rifjum við upp kunnáttu í að leita á neti.
Förum þá m.a. betur í stýfða leit og
Boolean leit.
|