Höfn í Hornafirði

eftir

Helgu Sigurbjörgu Gunnarsdóttur

 

Kynning/ Verkefni/ Bjargir/ Ferli/ Mat/ Niðurstaða

Kynning

Verkefni þetta er liður í að kynna þéttbýlisstaði á Austurlandi.Höfn í Hornafirði er syðsti þéttbýlisstaðurinn á Austurlandi. 
Þú ert ferðamaður sem langar til að heimsækja staðinn en fyrst langar þig að fá ýmsar upplýsingar um staðinn. T.d. hvað búa margir á Höfn, hvaða atvinnuveg stunda þeir, hvaða afþreyingu bjóða Hornfirðingar upp á o.s.frv.

Verkefni

Verkefnið felst í því að safna upplýsingum um Höfn í Hornafirði og gera haldgóða samantekt sem á að geta nýst hvaða ferðalangi sem er á ferð sinni um landið. Í verkefninu þurfa eftirfarandi atriði að koma fram:(sjá upptalningu á næstu síðu)
+ Íbúafjöldi

+ Atvinnuvegur

+ Afþreying og uppákomur

+ Skólamál staðarins

+ Staðsetning 

+ 1-2 myndir tengdar staðnum.

( Athugið þetta er eingöngu lykilatriði en samantektin verður betri ef ykkur tekst að finna fleiri atriði)

Bjargir

Gott er að skoða eftirfarandi krækjur á internetinu sem tengjast sögu og menningu Hafnar í Hornafirði:
Leiðarvísir fyrir ferðamenn um Höfn: (http://www.travelnet.is/isl/Journey/sv_al/hofn.html)
Vegalengdir frá Höfn í Hornafirði:

(http://www.vegag.is/vegalengdir/austurland/hofn_i_hornafirdi.html)

Heimasíðu Hornafjarar:

(http://www.hornafjordur.is/bfelag/index.html)

Myndir:

(http://www.althingi.is/halldor/xmynd2.html)

Heimasíður skóla á Höfn:

(http://www.ismennt.is/grunnsk/aust/heppeskoli.html)

(http://www.ismennt.is/grunnsk/aust/hafnarskoli.html)

(http://www.ismennt.is/grunnsk/aust/nesjaskoli.html)

(http://www.fas.is)

Heimasíða Jöklaferða:

(http://www.eldhorn.is/~glaciert.html)

Humarhátí á Hornafirði:

(http://www.eldhorn.is/humarhatid.html)

Ferli

  1. Byrjaðu á að láta hugann reika og skrifaðu upp allt sem þú veist nú þegar um Höfn í Hornafirði.
  2. Notaður þær hugmyndir auk þeirra sem ég set fram í verkefnislýsingunni sem útgangspunkta þegar þú ferð í bjargirnar til að leita þér nánari upplýsinga.
  3. Skrifaðu hjá þér öll þau atriði sem vöktu áhuga þinn sem tengjast staðnum en þú vissir ekki af áður en þú skoðaðir bjargirnar.
  4. Skrifaðu samantekt. Hafðu í huga að reyna að gera lýsinguna eins lifandi og skemmtilega og hægt er.
  5. Veldu myndir sem tengjast samantekt þinni með einhverjum hætti og þú telur að auki gæði verkefnisins.

Mat

Hver eistaklingur fær einkunn á bilinu 1-10 fyrir verkefnið. Innihald, framsetning, frágangur og málfar eru þau atriði sem höfð eru til grundvallar við matið. Innihald verkefnisins þarf að mynda ákveðna heild og gæta verður að stafsetningarvillum (gott er að láta einhvern lesa yfir samantektina fyrir sig). Þá skiptir einnig miklu máli að framsetning og frágangur sé til fyrirmyndar því það er hluti af einkunn. 
Niðurstaða
Verkefnið á að gefa einstaklingunum, sem það taka, aukna innsýn í sögu Hafnar og líf og störf þeirra sem þar búa. Það styrkir hugmyndir þeirra um landsbyggðina en er mikilvægt að allir Íslendingar þekki landið sitt. Heldur þú að það sé einhver munur á því að búa í Reykjavík og á Höfn í Hornafirði? Ef svo er í hverju felst munurinn? Gætirðu hugsað þér að heimsækja Höfn? Þessum spurningum ættir þú að geta svaraðþegar þú hefur lokið við verkefnið!

Seinast uppfært 9. nóvember 1999

Helga Sigurbjörg Gunnarsdóttir