Íslensku húsdýrin

eftir Kristínu Gunnarsdóttur

Kynning | Verkefni| Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða




Kynning

Hefur þú verið í sveit? Langar þig að kynnast íslensku húsdýrunum? Þetta verkefni fjallar um íslensku húsdýrin. Þið þurfið að kynna ykkur hross, kýr, kindur, hænsni, svín, hunda og ketti og vinna skemmtilegt verkefni í framhaldi af því.

Verkefni

Verkefnið er fólgið í því að þið veljið ykkur tvö dýr af ofantöldum húsdýrum, kynnið ykkur efni þeim tengdum og nýtið til þess krækjurnar hér á vefsíðunni. Þið eigið að gera ykkur grein fyrir einkennum hvers dýrs, til hvers þau eru nýtt og sögulegan bakgrunn hvers þeirra.

Svara þarf spurningunum:

    Hvað heitir karldýrið?

    Hvað heitir kvenndýrið?

    Hvað heitir afkvæmið?

    Til hvers er dýrið notað?

    Hvað borðar dýri?

    Hvað fæðir dýrið mörg afkvæmi?

    Hvaða hljóð gefur dýrið frá sér?

    Hvað heitir rófan?

Einnig á að fnna og flytja ljóð eða sögu um viðkomandi húsdýr og síðan að skrifa stutta samantekt um nytjar af dýrinu.

Bjargir

Hér er hægt að fá helstu upplýsingar um húsdýr einnig er hægt að fá upplýsingar um hvaða bóndabæi hægt er að heimsækja.

Hér eru "krækjur" á einstök húsdýr: svín, hestar, kindur, kýr, hundar, kettir, og hænsni.

Dægurlög tengd húsdýrum: Einbúinn , Þula

Sögulegur bakgrunnur: Hvað höfðu landnámsmenn með sér út hingað?
 
 

Ferli

 
  1. Fyrst eru skipt í fjögurra manna hópa.
  2. Hver hópur velur sér tvö dýr. Ætlast er til að innan hópanna vinni tveir og tveir saman með eitt dýr. Hver hópur skoðar efni á vefnum er tengist dýrunum, með aðstoð krækja.
  3. Þegar þið hafið skoðað vefsíðurnar og svarað spurningunum, skulið þið hjálpast að við samantekt og undirbúning að sameiginlegri kynningu verkefnisins. Ath. skila þarf verkefninu bæði munnlega og skriflega.
  4. Hver hópur kynnir sín dýr munnlega fyrir bekkjarfélögum.

Mat

 

 
 
 

Metið verður hversu vel verkefnið er unnið, framsetning og innihald. Einnig verður tekið tillit til málfars, áhuga, virkni og frumleika nemenda við vinnu og flutning verkefnisins.
 

Niðurstaða

Með þessu verkefni kynnast nemendur íslensku húsdýrunum. Nemendur læra að nota upplýsingar af vefnum, vinna með þær, skipta milli sín verkefnum og skipuleggja kynningu. Þeir þjálfast í að vinna saman, taka tillit til skoðanna hvors annars þar sem allir eru virkir þáttakendur.